Hinn 10. janúar 2013 var norska utanríkisráðuneytinu afhent fullgildingarskjal Íslands vegna almenns samnings um öryggi varðandi gagnkvæma vernd og miðlun leynilegra upplýsinga milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, sem gerður var í Osló 7. maí 2010. Samningurinn öðlaðist gildi 9. febrúar 2013.
Íslenskur texti samningsins í auglýsingu þessari er sú þýðing sem komið var á framfæri við norska utanríkisráðuneytið 2. október 2013. Það athugist að samkvæmt niðurlagsákvæði samningsins gengur enski textinn framar ef ágreiningur rís um túlkun samningsins.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 9. desember 2021.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|