Landskjörstjórn gerir kunnugt: að með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, sbr. og 5.-6. tölul. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, skuli mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður fyrir alþingiskosningar 28. október 2017 vera eftirfarandi:
Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi, en frá Vesturlandsvegi á móts við Sóltorg (ISN93 hnit: 364886, 405744) skal dregin bein lína í miðpunkt Sóltorgs og þaðan skulu mörkin dregin eftir miðlínu Kristnibrautar, Gvendargeisla og Biskupsgötu að Reynisvatnsvegi. Frá gatnamótum Biskupsgötu og Reynisvatnsvegar eru mörkin dregin eftir miðlínu Hólmsheiðarvegar allt til móts við Haukdælabraut 66 (ISN93 hnit: 367088, 405485) og þaðan skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93 hnit 369097, 405485).
Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir mörk milli Reykjavíkurkjördæma með rauðri línu, fylgiskjal 1 og uppdráttur sem sýnir mörk Reykjavíkurkjördæma í Grafarholti með rauðri línu, fylgiskjal 2.
Þá hefur landskjörstjórn ákveðið með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, að þeim sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík skv. b-lið 1. mgr. 23. gr. sömu laga skuli skipt milli Reykjavíkurkjördæma suður og norður þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður komi allir þeir sem eru fæddir 1.-15. dag mánaðar en í Reykjavíkurkjördæmi norður komi allir þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar. Sama regla gildir um þá sem skráðir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.
Reykjavík, 28. september 2017.
Landskjörstjórn,
Kristín Edwald formaður.
|
Ástráður Haraldsson. |
Dagný Rut Haraldsdóttir. |
|
|
|
|
Tinna Isebarn. |
Ásdís J. Rafnar. |
Guðný Vala Dýradóttir.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|