Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkt eftirfarandi skipulagsáætlun:
Norður-Foss, deiliskipulagsbreyting.
Breytingin felur í sér að afmörkun skipulagssvæðisins er breytt og það stækkað úr 3,4 ha í 3,8 ha. Tveir nýir byggingarreitir eru afmarkaðir og gerð er grein fyrir byggingarheimildum á þeim. Byggingarheimild á byggingarreit B er aukin um 620 m².
Samþykkt í sveitarstjórn þann 16. apríl 2020.
Ofangreind skipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Vík í Mýrdal, 22. júní 2020.
George Frumuselu, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|