Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 722/2022

Nr. 722/2022 1. júní 2022

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Deiliskipulag fyrir lóðina Bakki 1 í Ölfusi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss þann 31. mars 2022, deiliskipulag fyrir lóðina Bakki 1 í Ölfusi.
Skipulagið markar byggingarreit og setur skilmála fyrir ker og nauðsynlegar byggingar vegna fiskeldis á 3,5 ha svæði sem er skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi.
Deiliskipulag þetta hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

 

Þorlákshöfn, 1. júní 2022.

 

Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 16. júní 2022