Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum 21. mars 2019 breytingu á deiliskipulagi Leiru 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu, Eskifirði. Meginmarkmið breytingarinnar á deiliskipulagi er að auka athafnarými á hafnarsvæðinu með greiðu aðgengi að hafnarkanti og bættum samgöngutengingum. Deiliskipulagið var auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög gera ráð fyrir. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Fjarðabyggð, 16. apríl 2019.
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri.
|