Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti 24. nóvember 2022 breytingu á deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal. Breytingin felur í sér fjölgun íbúða við Ölkelduveg, Fellasneið og Hrannarstíg og uppfærslu með hliðsjón af áorðnum breytingum við Ölkelduveg. Almennum skilmálum um lóðafrágang hefur einnig verið bætt við ásamt leiðbeinandi legu göngustíga og sérskilmálum fyrir Hrannarstíg 42-54 og Fellasneið 3. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 42. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Grundarfirði, 6. janúar 2023.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri.
|