Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 16/2021

Nr. 16/2021 22. júní 2021

AUGLÝSING
um samning um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.

Hinn 2. júlí 2020 var kanadíska utanríkisráðuneytinu afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins, sem gerður var í Ilulissat 3. október 2018. Samningurinn var undirritaður fyrir Íslands hönd 3. október 2018.

Við afhendingu fullgildingarskjalsins var jafnframt lögð fram yfirlýsing fyrir Íslands hönd um réttar­stöðu hafsvæðisins umhverfis Svalbarða.

Samningurinn öðlast gildi 25. júní 2021.

Samningurinn er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og yfirlýsingin sem fylgiskjal 2.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 22. júní 2021.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 26. júlí 2021