Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 448/2020

Nr. 448/2020 4. maí 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna frístundabyggðar, Hlíð í Hörðudal.

Skipulagsstofnun staðfesti 4. maí 2020 breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. september 2018.
Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði í landi Hlíðar í Hörðudal er breytt í annars vegar 6 ha frístundabyggð og hins vegar 2 ha svæði fyrir verslun og þjónustu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 4. maí 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. maí 2020