Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Ártangi, L168272. Deiliskipulagsbreytingin felst í því að bætt er við 0,5 ha lóð, Ártanga 4. Lóð nr. 1 er felld út og mörk lóðar nr. 2 breytast og byggingarreitur stækkaður. Heimilt er að byggja 300 fm íbúðarhús og bílskúr á lóðinni. Samþykkt í sveitarstjórn 16. júní 2021.
Deiliskipulag, útivistarsvæði á Borg í Grímsnesi. Svæðið sem um ræðir er tæplega 19 ha að stærð og er ofan við núverandi byggð. Markmið skipulagsins er að skapa skjólgott útivistarsvæði með göngustígum, áningarstöðum og trjálundum til skjóls. Skilgreindur er byggingarreitur fyrir aðstöðuhús. Samþykkt í sveitarstjórn 18. ágúst 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Minni-Borg, lóð B, L198597. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að skilgreindur er 600 fm byggingarreitur þar sem gert er ráð fyrir 130 fm aðstöðuhúsi/starfsmannahúsi fyrir starfsmenn Minniborgar ehf. Samþykkt í sveitarstjórn 1. september 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Neðan-Sogsvegar 40, L169358 og 40b, L194759. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóðirnar tvær eru sameinaðar í eina lóð með heitinu Neðan‑Sogsvegar 40. Samþykkt í sveitarstjórn 17. nóvember 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Vaðnes, Efri-Markarbraut 8, L179294. Í deiliskipulagsbreytingunni felst breytt aðkoma að lóð Efri-Markarbrautar 8. Samþykkt í sveitarstjórn 15. september 2021.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 29. desember 2021.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|