Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1377/2019

Nr. 1377/2019 23. desember 2019

GJALDSKRÁ
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um akstursþjónustu eldri borgara.

1. gr.

Greiðsla.

Gjald fyrir hverja ferð hjá akstursþjónustu eldri borgara er kr. 1.245 óháð fjölda ferða.

2. gr.

Lækkun greiðslu.

Ef tekjur umsækjanda og maka hans eru undir eða við tekjuviðmið TR er unnt að sækja um lækkun greiðslu, og greiða þá sem samsvarar almennu fargjaldi skv. gjaldskrá Strætó bs. hverju sinni fyrir fyrstu 16 ferðirnar á mánuði en kr. 1.245 fyrir hverja ferð umfram 16 ferðir.

Heimilt er að veita þeim sem hafa allt að 5% umfram viðmiðunartekjur lækkun greiðslu og er hægt að leggja inn sérstakt erindi á þjónustumiðstöð með beiðni um lækkun til samræmis við þá sem hafa tekjur undir viðmiðunartekjum TR.

Árið 2019 eru viðmiðunartekjur TR kr. 310.800 fyrir þá sem búa einir og eru með heimilis­uppbót og kr. 248.105 fyrir þá sem búa með öðrum. Upphæðir munu hækka í samræmi við hækkanir á bótum almannatrygginga.

Aðrar bætur sem greiddar eru til lífeyrisþega frá TR umfram viðmiðunartekjur skal reikna sem umframtekjur. Greiðslur vegna sjúkra- og lyfjakostnaðar teljast ekki til tekna í þessu sambandi.

3. gr.

Ákvörðun um lækkun.

Ákvörðun um lækkun á greiðslu vegna akstursþjónustu er tekin af starfsmanni þjónustu­miðstöðvar og skal lögð fyrir fund til afgreiðslu. Gjaldalækkun tekur gildi strax við samþykkt en gildir ekki afturvirkt.

4. gr.

Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.

Kynna skal niðurstöðu skriflega svo fljótt sem unnt er.

Ákvörðun um synjun á lækkun greiðslu vegna akstursþjónustu má skjóta til velferðarráðs Reykja­víkurborgar. Skal það gert skriflega og eigi síðar en 4 vikum eftir að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun.

Ákvörðun velferðarráðs má skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála Hafnar­hús­inu við Tryggvagötu. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun.

5. gr.

Gjaldskylda ónýttrar þjónustu.

Greiða skal fyrir pantaðar ferðir þegar forföll hafa ekki verið tilkynnt. Afpöntun ferðar skal vera með sem mestum fyrirvara, helst deginum áður en í undantekningartilvikum þremur klukkustundum fyrir fyrirhugaða ferð. Að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri.

6. gr.

Gildistaka.

Gjaldskráin er sett í samræmi reglur Reykjavíkurborgar um akstursþjónustu aldraðra nr. 366/2018, en þær eru settar með stoð í X. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Samþykkt í borgarstjórn 5. nóvember 2019. Gjaldskrá þessi tekur gildi frá og með 15. janúar 2020. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1235/2018.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. desember 2019.

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2020