Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 147/2019

Nr. 147/2019 22. desember 2019

LÖG
um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, með síðari breytingum (Grænland og Færeyjar).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

    Við 2. mgr. 2. gr. laganna bætist: auk Grænlands og Færeyja.

2. gr.

    Á eftir orðunum „Evrópska efnahagssvæðið“ í 5. málsl. 2. mgr. 5. gr. laganna kemur: auk Grænlands og Færeyja.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 22. desember 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.


A deild - Útgáfud.: 27. desember 2019