Hinn 28. október 2011 var aðalframkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) afhent fullgildingarskjal Íslands vegna bókunar um breytingu, sem gerð var í París 27. maí 2010, á samningi um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum, sem gerður var í Strassborg 25. janúar 1988, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 13/1996, þar sem samningurinn er birtur. Jafnframt var afhentur breyttur viðauki A við samninginn.
Bókunin og breyttur viðauki A öðluðust gildi 1. febrúar 2012. Samkvæmt 2. gr. laga nr. 74/1996, sbr. breytingarlög nr. 135/2011, öðluðust ákvæði bókunarinnar lagagildi hér á landi við gildistöku hennar gagnvart Íslandi.
Bókunin er birt sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og breyttur viðauki A sem fylgiskjal 2.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|