Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 346/2019

Nr. 346/2019 12. apríl 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftir­far­andi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Hverabraut 1, Laugarvatni.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir að gönguleið meðfram Laugarvatni fari vestur fyrir lóðina Hverabraut 1. Breytingin felst í því að kvöð um aðgengi meðfram stöðu­vatninu er felld niður innan lóðarinnar Hverabrautar 1. Þess í stað mun stígurinn liggja vestur fyrir Hverabraut 1.
Samþykkt í sveitarstjórn 21. febrúar 2019.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 12. apríl 2019.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2019