Unnardalur 1-23, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þann 5. mars 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Unnardal 1-23. Fjölgun íbúða úr 24 íbúðum í 36, fjarlægð frá lóðamörkum til norðurs og suðurs stytt úr 4 m í 3 m og bílastæðakrafa lækkuð úr 2 stæði á íbúð í 1,6. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Víkurbraut 21-23, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þann 16. apríl 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Víkurbraut 21-23. Lóð Víkurbrautar 21-23 færist sunnar og bæjarlandið norðar, á núverandi lóð Víkurbrautar 21-23. Nýbygging þriggja 5 hæða fjölbýlishúsa, með allt að 81 íbúð. Niðurrif á saltgeymslum. Götuheiti er breytt úr Víkurbraut 21-23 í Hafnargötu 81, 83 og 85. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Tjarnabakki 2, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þann 16. apríl 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Tjarnabakka 2. Fjölgun íbúða úr 20 í 24, bílgeymslum fækkað úr 8 í 4 og bílastæðum fjölgað úr 34 í 40. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Reykjanesbæ, 23. maí 2019.
Kjartan M. Kjartansson bæjarstjóri.
|