Deiliskipulag, Grenjar, hafnarsvæði H3. Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 9. apríl 2019 breytingu á deiliskipulagi Grenja, hafnarsvæði H3, vegna lóðanna Bakkatúns 30 og Bakkatúns 32. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir viðbyggingu til suðvesturs frá núverandi byggingu. Hámarksvegghæð viðbyggingar er 6,5 m og hámarkshæð viðbyggingar er 11,5 m. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Akranesi, 20. maí 2019.
Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri.
|