Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2022

Nr. 10/2022 9. febrúar 2022

LÖG
um staðfestingu ríkisreiknings 2020.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

Staðfesting ríkisreiknings.

    Með lögum þessum staðfestist ríkisreikningur fyrir árið 2020, sbr. 58. gr. laga um opinber fjár­mál, nr. 123/2015.

 

2. gr.

Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 9. febrúar 2022.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 23. febrúar 2022