Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 266/2023

Nr. 266/2023 27. febrúar 2023

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 777/2021, um gildistöku á reglugerð (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, e-liður, svohljóðandi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/1034 frá 29. júní 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi COVID-19 vottorða um bólusetningu, próf og bata (stafrænt ESB-vottorð vegna COVID) til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 208/2022 frá 8. júlí 2022 og talin er upp í 10. lið í V. viðauka og lið 11 í VIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins, nr. 63, frá 29. september 2022, bls. 169-177.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. og 18. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. febrúar 2023.

 

Willum Þór Þórsson.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. mars 2023