Hallgrímstorg 3. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 28. október 2016, breytingar á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 3 við Hallgrímstorg. Í breytingunni felst að skipulagssvæðið er stækkað um lóðina Hallgrímstorg 3 og nýr byggingarreitur er afmarkaður fyrir allt að 250 m² viðbyggingu við suðaustur hlið hússins. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Grandagarður 14. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 11. ágúst 2017, breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðar nr. 14 við Grandagarð. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri timburbryggju og utan timburbryggju er gert ráð fyrir flotbryggju sem slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur afnot og aðgang að. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar, 7. september 2017.
Björn Axelsson.
|