1. gr.
31. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Grásleppa skal vegin á hafnarvog samkvæmt ákvæðum 7. gr.
Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara.
Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2021.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
|