Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 44/2006

Nr. 44/2006 25. september 2006

AUGLÝSING
um gerð sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og Ísland og Noregur gerðu með sér um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna.

Hinn 18. september 2006 var ráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands á ákvörðun Evrópu­þingsins og ráðsins nr. 895/2006/EB frá 14. júní 2006 um að koma á einfölduðu fyrir­komu­lagi við eftirlit með einstaklingum við ytri landamærin á grundvelli einhliða viðurkenningar Tékk­lands, Eistlands, Kýpur, Lettlands, Litháens, Ungverjalands, Möltu, Póllands, Slóveníu og Slóvakíu á tilteknum skilríkjum sem ígildi landsbundinna vegabréfsáritana vegna gegnumferðar um yfirráða­svæði þeirra, sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér 18. maí 1999 um þátttöku hinna síðarnefndu í fram­kvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Breytingin öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 18. september 2006.

Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 25. september 2006.

Valgerður Sverrisdóttir.

Grétar Már Sigurðsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 17. október 2016