Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 20/2018

Nr. 20/2018 2. maí 2018

FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 84/2017, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði nr. 84/2017, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands:

1. gr.

Við 2. tölul. 8. gr. bætist nýr stafliður sem orðast svo: Flutning hergagna og annars varnings með loftförum skv. 1. og 5. mgr. 78. gr. laga um loftferðir.

2. gr.

Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 2. maí 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 2. maí 2018