Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1734/2021

Nr. 1734/2021 16. desember 2021

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og barnamálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, staðfest eftir­­farandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skil­­yrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðal­námskrá framhaldsskóla. Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga. Hinar staðfestu náms­brautar­lýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

 

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Bakaraiðn, bakari, hæfniþrep 3 (21-519-3-8)

 

3. gr.

Eftirfarandi námsbraut fellur úr gildi:

Heiti námsbrautar Raðnúmer (áður auglýst í Stjórnartíðindum)
Bakari, brauða- og kökugerð, bakari, hæfniþrep (21-507-3-8) (auglýsing nr. 893/2021)

 

4. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

 

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. desember 2021.

 

Ásmundur Einar Daðason
mennta- og barnamálaráðherra.

Páll Magnússon.


B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2022