1. gr.
Flóahreppur innheimtir gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs í samræmi við 1. mgr. 23 gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Þá er Flóahreppi skv. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 heimilt að innheimta gjald fyrir tengda starfsemi sem samræmist markmiðum laganna svo sem þróun nýrrar tækni við meðhöndlun úrgangs, rannsóknir, fræðslu og kynningarmál samanber samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Flóahreppi nr. 1198/2019 og 23. gr. laga nr. 55/2013, sbr. einnig 59. gr. laga nr. 7/1998. Gjöldin eru lögð á árlega og innheimt samhliða fasteignaskatti.
2. gr.
Sorphirðugjald.
Sorphirðugjald er lagt á í samræmi við samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Flóahreppi.
240 lítra tunna |
17.305 kr. |
660 lítra kar |
51.012 kr. |
1.100 lítra kar |
84.904 kr. |
3. gr.
Sorpeyðingargjald.
Íbúðir |
17.672 kr. |
Sumarhús |
17.672 kr. |
Atvinnurekstur, iðnaðarhverfi |
38.558 kr. |
Atvinnurekstur, lögbýli |
20.885 kr. |
4. gr.
Seyrulosun.
Fyrir tæmingu þriðja hvert ár
Íbúðarhús/sumarhús
|
10.250 kr.
|
5. gr.
Gjald vegna aukalosana á rotþróm heimila, sumarhúsa og atvinnufyrirtæka greiðist af eiganda, kr. 36.000 fyrir aukalosun + 500 kr./km í tengslum við aðra hreinsun, en kr. 86.000 + 500 kr./km fyrir aukalosun sem er sérferð.
6. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Flóahrepps 8. desember 2020 og öðlast gildi við birtingu. Gjaldskrá nr. 1297/2018 fellur úr gildi við gildistöku þessarar.
Flóahreppi, 10. desember 2020.
Eydís Þ. Indriðadóttir sveitarstjóri.
|