Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 157/2019

Nr. 157/2019 27. desember 2019

LÖG
um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (forsendur úthlutunar úr Jöfnunarsjóði).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

    B-liður 1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: Úthlutuð framlög til sveitarfélaga skv. III. kafla.

2. gr.

    E-liður 10. gr. laganna orðast svo: Til Tryggingastofnunar ríkisins vegna eftirlaunasjóðs aldraðra samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:

  1. A-liður orðast svo: Til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, svo sem með þátttöku í eðlilegum kostnaði við undirbúning sameiningar, kynningu á sameiningartillögu og fram­kvæmd atkvæðagreiðslu. Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga setur vinnureglur sem stað­festar skulu af ráðherra þar sem fram komi viðmiðunarfjárhæðir þessara framlaga. Einnig er heimilt að veita aðstoð með óskertum tekjujöfnunar- og útgjaldaframlögum á því ári þegar sameiningin tekur gildi og með sérstöku framlagi í fjögur ár sem nemur þeirri skerðingu sem kann að verða á tekjujöfnunar- og útgjaldajöfnunarframlögum í kjölfar sam­ein­ingar. Þá er heimilt að veita sérstök framlög í allt að sjö ár til að jafna skuldastöðu sveitar­félaga vegna kostnaðar við framkvæmd sameiningar, til að stuðla að endur­skipulagn­ingu þjónustu og stjórnsýslu og til að rétta stöðu sveitarfélaga þar sem fjölgun íbúa hefur verið undir árlegri meðalfjölgun íbúa í sveitarfélögum á landsvísu. Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð, sbr. 18. gr., m.a. um forsendur og útreikning framlaga.
  2. Í stað orðanna „sbr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga“ í b-lið kemur: með styrk eða láni, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 84. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
  3. C-liður orðast svo: Til greiðslu stofnkostnaðar við vatnsveitur á lögbýlum þar sem hag­kvæmara er að mati sveitarstjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004. Hámarksfjárhæð vegna ein­stakra framkvæmda má nema allt að 44% stofnkostnaðar við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa. Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð, sbr. 18. gr., um skilyrði fyrir úthlutun sam­kvæmt ákvæði þessu.
  4. Við d-lið bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Framlag samkvæmt þessum lið skal greiða þegar afskrifað endurstofnverð fasteigna í sveitarfélagi, annarra en sumarbústaða, marg­faldað með markaðsstuðli fasteigna sveitarfélaga sem eru í viðmiðunarflokki a skv. 12. gr., er hærra en fasteignamat sömu fasteigna. Skal framlagið nema mismuninum, marg­föld­uðum með álagningarprósentu fasteignaskatts viðkomandi sveitarfélags, á því ári þegar framlagið er ákveðið.

4. gr.

    Í stað 12. gr. laganna koma þrjár nýjar greinar, 12. gr., 12. gr. a og 12. gr. b, svohljóðandi:

    a. (12. gr.)

    Jöfnunarframlög skiptast í tvennt, tekjujöfnunarframlög, sbr. 12. gr. a, og útgjalda­jöfnunar­framlög, sbr. 12. gr. b. Til jöfnunarframlaga skal verja þeim tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið 8. gr. a sem eru umfram ráðstöfun skv. 10. og 11. gr.

    Til grundvallar útreikningi jöfnunarframlaga gerir ráðherra árlega skrá um álagðar skatttekjur sveitar­félaga á yfirstandandi reikningsári ásamt skrá um fullnýtingu tekjustofna, þ.e. útsvars, fast­eigna­skatts, framlags skv. d-lið 11. gr. og framleiðslugjalds. Með útsvari er átt við álagt útsvar á yfir­stand­andi ári á tekjur fyrra árs.

    Á grundvelli skrár um fullnýtingu tekjustofna sveitarfélaga skal reikna út meðaltekjur sveitar­félaga á hvern íbúa í eftirtöldum viðmiðunarflokkum sem ráðast af íbúafjölda sveitarfélaga:

  1. í sveitarfélögum með 70.000 íbúa eða fleiri,
  2. í sveitarfélögum með 12.000–69.999 íbúa,
  3. í sveitarfélögum með 300–11.999 íbúa,
  4. í sveitarfélögum með 299 íbúa eða færri.

    Við útreikning meðaltekna skal sleppa tekjum sem sveitarfélög hafa af álagningu einstakra fast­eigna ef tekjur vegna þeirra eru umfram 7% af heildartekjum sveitarfélagsins. Þá skal sleppa ein­stökum sveitarfélögum sem eru með tekjur á hvern íbúa sem eru 50% yfir meðaltekjum í hverjum viðmiðunarflokki.

    b. (12. gr. a.)

    Tekjujöfnunarframlögum skal úthlutað til að jafna tekjur sveitarfélaga. Útreiknuð framlög skulu miðuð við sveitarfélög að sambærilegri stærð og fullnýtingu tekjustofna þeirra, sbr. 12. gr. Ef reiknað meðaltal sveitarfélaga á hvern íbúa í sveitarfélagi, sbr. 12. gr., er lægra en 97% af meðaltali á hvern íbúa í öllum sveitarfélögum í viðkomandi flokki skal greiða sveitarfélagi tekju­jöfn­unarframlag sem nemur allt að mismuninum.

    Einungis kemur til úthlutunar og greiðslu framlags hafi sveitarfélag fullnýtt heimild sína til álagn­ingar útsvars.

    c. (12. gr. b.)

    Útgjaldajöfnunarframlögum skal varið til að mæta mismunandi útgjaldaþörf sveitarfélaga á grund­velli stærðarhagkvæmni og tekna þeirra, að teknu tilliti til þeirra landfræðilegu og lýð­fræði­legu þátta sem almennt hafa áhrif á útgjaldaþörf, sbr. viðauka við lög þessi.

    Við útreikning útgjaldajöfnunarframlaga, sbr. 1. mgr., skal lækka framlög til sveitarfélaga þar sem reikn­aðar meðaltekjur sveitarfélaga á hvern íbúa, miðað við fullnýtingu tekjustofna sveitar­félags, eru 4% yfir meðaltali í hverjum viðmiðunarflokki, sbr. 12. gr. Framlög falla niður þegar meðal­tekjur á íbúa eru 23% yfir meðaltali. Lækkun framlaga innan þessara marka skal vera hlutfalls­leg.

5. gr.

    Í stað 1. og 2. mgr. 13. gr. laganna koma átta nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

    Tekjum Jöfnunarsjóðs vegna reksturs grunnskóla skv. 1. tölul. 1. mgr. c-liðar 8. gr. a að frá­dregnu framlagi til Sambands íslenskra sveitarfélaga skv. a-lið 10. gr. skal varið til að jafna útgjalda­þarfir sveitarfélaga vegna kostnaðar af rekstri grunnskóla og skiptast framlögin í eftirfar­andi flokka:

  1. Almenn jöfnunarframlög.
  2. Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda.
  3. Framlög vegna nemenda með íslensku sem annað mál.
  4. Framlög til Barnaverndarstofu vegna kennslu barna á grunnskólaaldri sem eru að beiðni barnaverndarnefndar lögheimilissveitarfélags vistuð utan þess á meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu.
  5. Önnur framlög til sveitarfélaga og stofnana sem tengd eru rekstri grunnskóla.

    Miða skal við að 70–80% af tekjum Jöfnunarsjóðs vegna reksturs grunnskóla, sbr. 1. mgr., skuli varið í almenn jöfnunarframlög skv. a-lið 1. mgr.

    Við útreikninga almennra jöfnunarframlaga skv. a-lið 1. mgr. skal finna mismun heildar­útgjalda­þarfar hvers sveitarfélags og áætlaðra útsvarstekna, 2,33% af útsvarsstofni, sem renna til sveitar­félaga vegna yfirfærslu á rekstri grunnskóla til sveitarfélaga.

    Jöfnunarsjóður skal gera áætlun um heildarframlög skv. b-lið 1. mgr. og skulu framlög veitt á grundvelli umsókna vegna sérþarfa fatlaðra nemenda sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og ráðast af viðmiðunarstigi fötlunar, eftir tegund hennar og þörf hvers nemanda.

    Jöfnunarsjóður skal gera áætlun um heildarframlög skv. c-lið 1. mgr. og skulu framlög veitt á grundvelli umsókna vegna fjölda nemenda sem hafa íslensku sem annað mál og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.

    Jöfnunarsjóður skal annast greiðslu á útlögðum kostnaði Barnaverndarstofu vegna kennslu þeirra barna á grunnskólaaldri sem eru að beiðni barnaverndarnefndar lögheimilissveitarfélags vistuð utan þess á meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu og skal Jöfnunarsjóður draga fjárhæð sem nemur kennslukostnaði frá jöfnunarframlögum viðkomandi sveitarfélags. Barnaverndarstofu er skylt að láta Jöfnunarsjóði í té upplýsingar um þau börn eftir því sem nauðsynlegt er við framkvæmd þessarar greinar.

    Jöfnunarsjóði er heimilt að veita sérstök framlög til sveitarfélaga og stofnana vegna verkefna, nýsköpunar eða þróunarvinnu sem tengist rekstri grunnskóla skv. e-lið 1. mgr. á grundvelli sér­stakra samninga. Jöfnunarsjóði er einnig heimilt að veita sérstök framlög til sveitarfélaga á grund­velli umsókna þeirra vegna ófyrirséðra tilvika í rekstri grunnskóla sem leiða til mikilla útgjalda umfram tekjur.

    Framlög skv. a–d-lið 1. mgr. renna ekki til sveitarfélaga í viðmiðunarflokki a, sbr. 3. mgr. 12. gr.

6. gr.

    Í stað orðanna „og ákvörðun á framlagi sérdeildarinnar til fasteignasjóðs, sbr. 13. gr. b“ í 4. málsl. 2. mgr. 13. gr. a laganna kemur: til verkefna sem tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk auk heimilda Jöfnunarsjóðs til að veita sérstök viðbótarframlög til þjónustusvæða.

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:

  1. 3. málsl. fellur brott.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
        Ekki skal úthluta jöfnunarframlagi skv. d-lið 11. gr., 12. gr. a og 12. gr. b og 1. mgr. 13. gr. til þeirra sveitarfélaga þar sem samanlagðar heildarskatttekjur af útsvari og fast­eigna­skatti á hvern íbúa miðað við fullnýtingu þeirra tekjustofna eru 50% umfram meðal­tekjur annarra sveitarfélaga í sama viðmiðunarflokki, sbr. 12. gr.

8. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða I, IV–XIV og XVI–XVIII í lögunum falla brott.

9. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum orðast svo:

    Á árunum 2019, 2020 og 2021 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga kostnað sveitarfélaga vegna verkefna á grundvelli samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Kostnaður vegna verkefna samkvæmt þessari grein skal innheimtur af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda á því ári sem kostnaður er innheimtur.

10. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Við útreikning framlags árin 2020 og 2021 skv. d-lið 11. gr. skal miða við álagningarhlutfall fasteignaskatts árið 2019, enda hafi álagningarhlutfall í viðkomandi sveitarfélagi lækkað frá því ári.

11. gr.

    Við lögin bætist nýr viðauki, svohljóðandi:

Viðauki.

    Útgjaldajöfnunarframlög skiptast í A- og B-hluta. Hlutfallsleg skipting þess fjár sem er til ráð­stöfunar skv. A-hluta ræðst af eftirfarandi:

   Viðmið Hlutfall af heild
1.   Fjöldi íbúa á aldr­in­um 0–5 ára 31,10% 
2.   Fjöldi íbúa á aldr­in­um 6–15 ára 23,90% 
3.   Fjöldi íbúa á aldr­in­um 16–66 ára  7,50%
4.   Fjöldi íbúa á aldr­in­um 67–80  9,60%
5.   Fjöldi íbúa á aldr­in­um 81 árs og eldri  6,20%
6.   Fjöldi inn­flytj­enda á aldr­in­um 0–5 ára  2,60%
   Sam­tals íbúa­tengd fram­lög: 80,90% 
     
7.   Fjar­lægðir inn­an sveitarfélaga  7,90%
8.   Fjöldi þétt­býl­isstaða um­fram einn  5,50%
9.   Fækk­un íbúa  1,50%
10.   Fjölg­un íbúa  1,00%
11.   Snjómokst­ur í þétt­býli  3,20%
   Alls:   100%

    Skýringar á útreikningi framlaga:

A-hluti.

  1. Íbúatengd framlög: Við útreikning íbúatengdra framlaga skal byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda í sveitarfélagi í viðkomandi aldurshópi. Framlag til hvers sveitarfélags tekur mið af hlutfallslegum íbúafjölda þess af heildaríbúafjölda á landinu öllu innan hvers viðmiðunarflokks. Þegar lokið er útreikningi íbúatengdra framlaga samkvæmt framangreindu skal umreikna þau með tilliti til stærðar hvers sveitarfélags á grundvelli eftirfarandi stuðla sem byggjast á íbúafjölda sveitarfélags. Stuðlarnir eru fundnir þannig:
        Sveitarfélög með 2.899 íbúa eða færri fá stuðulinn 1,0.
        Sveitarfélög með 2.900–9.999 íbúa fá stuðul hlutfallslega á bilinu 1,0–0,215. 
        Sveitarfélög með 10.000–15.999 íbúa fá stuðulinn 0,215. 
        Sveitarfélög með 16.000–21.999 íbúa fá stuðul hlutfallslega á bilinu 0,215–0. 
        Sveitarfélög með 22.000 íbúa eða fleiri fá stuðulinn 0.
  2. Fjarlægðir í sveitarfélögum : Við mat á útgjaldaþörf sveitarfélags skal taka tillit til fjarlægða innan sveitarfélags og hlutfalls íbúa í þéttbýli og dreifbýli. Fjarlægðir í sveitarfélögum skulu mældar á eftirfarandi hátt:
    1. Settir skulu punktar á ystu mörk sveitarfélags, þó aldrei lengra en á ystu mörk byggðar, í norðri, austri, suðri og vestri, eða annars staðar eftir landfræðilegum aðstæðum í sveitarfélagi.
    2. Vegalengdir skulu mældar frá þessum punktum miðað við stystu akstursleið að stærsta þéttbýliskjarna sveitarfélags eða miðpunkti þess ef enginn þéttbýliskjarni er í sveitarfélaginu.
    3. Þannig mældar vegalengdir skal síðan margfalda með stuðlum sem eru mismunandi eftir sveitarfélögum og miðast við hlutfall íbúa í þéttbýli og dreifbýli. Heimilt er að líta eingöngu á stærsta þéttbýlisstaðinn eða -staðina sem þéttbýli. Stuðlana skal reikna þannig:
      1. Sveitarfélög með hlutfall þéttbýlis frá 0 til 49 fá stuðul hlutfallslega á bilinu 0,1–1,0.
      2. Sveitarfélög með hlutfall þéttbýlis frá 50 til 89 fá stuðulinn 1,0.
      3. Sveitarfélög með hlutfall þéttbýlis frá 90 til 100 fá stuðul hlutfallslega á bilinu 1,0–0,0.
  3. Fjöldi þéttbýlisstaða umfram einn: Við útreikning skal taka tillit til sérstakrar útgjaldaþarfar sveitarfélaga sem halda þurfa úti þjónustu á fleiri en einum þéttbýlisstað innan sveitar­félagsins. Höfuðborgarsvæðið telst allt vera einn þéttbýlisstaður í þessum skilningi, að undan­skildu Kjalarnesi. Útreikningum skal þannig hagað að fjármagn skiptist hlutfallslega á eftir­far­andi hátt:
    1. 60% skal skipta á grundvelli íbúafjölda í þéttbýlisstöðum umfram einn.
    2. 40% skal skipta eftir fjölda þéttbýlisstaða umfram einn í hverju sveitarfélagi.
  4. Fækkun íbúa: Ef íbúum sveitarfélags hefur á síðustu þremur árum fækkað árlega um meira en 1% að meðaltali skal reikna út framlag vegna fólksfækkunar. Við útreikninga framlagsins er horft til hver sé meðalfækkun sveitarfélagsins í íbúum talið sem er umfram 1%. Sá íbúa­fjöldi er síðan lagður saman hjá öllum sveitarfélögum og framlag til hvers sveitarfélags er í sam­ræmi við hlutfall þess í heildarfækkun umfram 1%.
  5. Fjölgun íbúa: Ef íbúum sveitarfélags hefur á síðustu þremur árum fjölgað árlega um meira en 2,5% að meðaltali skal reikna út framlag vegna fólksfjölgunar. Við útreikninga fram­lags­ins er horft til hver sé meðalfjölgun sveitarfélagsins í íbúum talið sem er umfram 2,5%. Sá íbúafjöldi er síðan lagður saman hjá öllum sveitarfélögum og framlag til hvers sveitar­félags er í samræmi við hlutfall þess í heildarfjölgun umfram 2,5%.
  6. Snjómokstur í þéttbýli: Framlögum skal úthlutað til sveitarfélaga á snjóþyngstu svæðum lands­ins vegna útgjalda af snjómokstri gatna í þéttbýli sveitarfélags á grundvelli vinnureglna sem ráð­herra setur samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

B-hluti.

    Fjármagn sem til ráðstöfunar er samkvæmt þessum hluta rennur til framlaga vegna skólaaksturs úr dreifbýli og akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.

    Skólaakstur úr dreifbýli: Útreikningur framlaga byggist á upplýsingum frá sveitarfélögum um akstursleiðir úr dreifbýli sveitarfélags og fjölda grunnskólabarna á hverri leið sem eiga heimili lengra en 3,0 km frá skóla, miðað við 1. október ár hvert. Framlög taka mið af lengstu aksturs­vegalengd innan hverrar leiðar frá heimili að skóla, fjölda barna, stærð ökutækis og upp­lýs­ingum frá mennta- og menningarmálaráðuneyti um fjölda skóladaga á viðkomandi skólaári. Ráð­herra setur vinnureglur um úthlutun framlagsins samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að feng­inni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk: Útreikningur framlaga byggist á umsóknum frá sveitarfélögum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli. Framlög taka mið af akstursvegalengd og fjölda farþega. Ráðherra setur vinnureglur um úthlutun framlagsins samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

12. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 27. desember 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Sigurður Ingi Jóhannsson.


A deild - Útgáfud.: 3. janúar 2020