Deiliskipulagsbreyting, Suðurgata 35b. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 16. apríl 2019 var samþykkt breyting á lóðinni við Suðurgötu 35b og erindið afgreitt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
Deiliskipulagsbreyting, Selhraun norður. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 4. júní 2019 var samþykkt breyting á deiliskipulaginu Selhraun norður og erindið afgreitt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
F.h. skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar, 27. júní 2019,
Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt.
|