Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti þann 19. september 2018 breytingu á eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Frístundabyggð í Indriðastaðahlíð, Skorradal. Breytingin felur í sér að skipulagssvæðið stækkar um 1,34 ha og frístundalóðum fjölgar um eina vestast á skipulagssvæðinu. Heimilað byggingarmagn á umræddri lóð er 165 m². Vatnsverndarsvæði er einnig skilgreint í samræmi við aðalskipulag Skorradalshrepps 2010-2022.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
F.h. hreppsnefndar Skorradalshrepps, 25. febrúar 2019,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir skipulagsfulltrúi.
|