Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1318/2021

Nr. 1318/2021 25. nóvember 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulagsmál í Akraneskaupstað.

Jaðarsbakkar 1, íþróttahús.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 23. nóvember 2021 breytingu á deiliskipulagi Jaðars­bakka vegna Jaðarsbakka 1, íþróttasvæði. Í breytingunni felst hækkun íþróttahúss úr 10 m í 11,5 m.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin öðlast þegar gildi.

 

Skógarlundur 6.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 23. nóvember 2021 breytingu á deiliskipulagi Skógar­hverfis, áfangi 3A, vegna Skógarlundar 6. Breytingin felur í sér tilfærslu á bílastæði til suðausturs.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin öðlast þegar gildi.

 

Akranesi, 25. nóvember 2021.

 

Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi.

 


B deild - Útgáfud.: 25. nóvember 2021