Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1110/2020

Nr. 1110/2020 16. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1106/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfs­fólks skal það notast við andlitsgrímur.
  2. Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn.
  3. Á eftir lokamálslið 1. mgr. kemur nýr málsl. svohljóðandi: Ákvæði um blöndun hópa, grímu­skyldu og nálægðartakmörkun gilda ekki á útisvæðum leikskóla.
  4. Á eftir orðinu „heimilt“ í 6. mgr. kemur: , þó að hámarki 50 börn saman. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í leikskólastarfi.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu „starfsfólks“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: , milli starfsfólks og nemenda í 8.–10. bekk og milli nemenda í 8.–10. bekk.
  2. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skv. 1. málsl. skulu kennarar og nemendur í 8.–10. bekk notast við andlitsgrímur.
  3. Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við nemendur í 1.–7. bekk.
  4. Í stað orðanna „1.–4. bekk“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 1.–7. bekk.
  5. Í stað orðanna „5.–10. bekk“ í 1. málsl. 3. mgr. og í 1. og 2. málsl. 4. mgr. kemur: 8.–10. bekk.
  6. Á eftir 4. mgr. kemur nýr málsl. svohljóðandi: Á útisvæðum grunnskóla gilda ekki ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu eða nálægðartakmörkun milli nemenda.
  7. Á eftir orðinu „grunnskólastarfi“ í 6. mgr. koma orðin: , í félagsmiðstöðvum.
  8. 8. mgr. verður svohljóðandi: Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunn­skóla­aldri er heimilt, þ.e. að hámarki 50 börn í 1.–4. bekk og að hámarki 25 í 5.–10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í grunnskólastarfi.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi 18. nóvember 2020 og gildir til og með 1. desember 2020.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. nóvember 2020.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 17. nóvember 2020