1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:
Ísafjarðarbær.
Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Hnífsdals, með eftirfarandi viðauka/breytingum, sem eru til viðbótar áður auglýstum sérstökum skilyrðum samkvæmt auglýsingu (II) nr. 87 frá 29. janúar 2019:
Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 15. mars 2019.
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. apríl 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.
|