Félagsfundur Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf. hefur samþykkt eftirfarandi gjaldskrá fyrir fráveitu og birtir hana í umboði bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar:
1. gr.
Álögð fráveitugjöld.
Sveitarfélag |
Fast gjald kr./matseiningu |
Breytilegt gjald kr./fermetra |
Veitusvæði II - Akranes |
11.269 |
434,96 |
Fyrir fasteignir í landi Krosslands í Hvalfjarðarsveit gildir verð skv. veitusvæði II – Akranes.
Heimilt er að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum þar sem tenging er fyrir hendi við mörk fasteignar. Fráveitugjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og fermetragjaldi eftir stærð samkvæmt fasteignamati. Heimilt er að reiknað sé af flatarmáli allra mannvirkja á fasteign.
Heimilt er Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu að gjaldfella álagningu ársins verði greiðslufall á einum eða fleiri reikningum álagningarinnar.
Heimilt er að innheimta sérstakt aukagjald ef frárennsli frá gjaldskyldum aðila er svo mengað að það leiði til sérstakra aðgerða fráveitunnar, svo sem sértækrar hreinsunar eða breytinga í kerfinu. Er þá innheimtur raunkostnaður sem hlýst af viðkomandi aðgerð.
2. gr.
Tengigjöld.
Svæði |
Tengigjald¹ |
Grunnur |
Ný hverfi, þar sem tengingar eru ekki til staðar inn á lóð |
439.677 |
Kr./lóð |
¹ Verð miðast við tvöfalda 150 mm tengingu við lóðarmörk og fyrstu tengingu inn á lóð, lóðarhafar greiða raunkostnað fyrir umframtengingar og stærri tengingar. Fyrir stakar lóðir, þar sem tenging er ekki til staðar t.d. vegna þéttingar byggðar, greiðir lóðarhafi raunkostnað af nýrri tengingu við virkt fráveitukerfi. Hafi lóðarhafi eða verktaki á hans vegum lagt tengingu undir eftirliti Orkuveitunnar greiðir hann fyrir tengistút við safnkerfi kr. 84.275.
|
3. gr.
Gjaldskrá þessi sem er sett í samræmi við lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og reglugerð um fráveitur sveitarfélaga nr. 982/2010 öðlast gildi 20. nóvember 2020. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1193/2019.
Reykjavík, 4. nóvember 2020.
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf.,
Gestur Pétursson framkvæmdastjóri Veitna.
|