1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/7 frá 30. október 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1031/2010 að því er varðar uppboð á 50 milljónum óúthlutaðra losunarheimilda úr markaðsstöðugleikavarasjóðnum fyrir nýsköpunarsjóðinn og um að skrá uppboðsvettvang sem Þýskaland tilnefnir sem vísað er til í tölulið 21ala, XX. viðauka eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2019 sem birtist í EES-viðbæti, nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 180–184.
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/7 frá 30. október 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1031/2010 að því er varðar uppboð á 50 milljónum óúthlutaðra losunarheimilda úr markaðsstöðugleikavarasjóðnum fyrir nýsköpunarsjóðinn og um að skrá uppboðsvettvang sem Þýskaland tilnefnir sem vísað er til í tölulið 21ala, XX. viðauka eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2019.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 28. gr. laga nr. 70/2012, um loftslagsmál, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 18. nóvember 2019.
F. h. r.
Sigurður H. Helgason.
|