Hinn 2. maí 2006 var ráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands á ákvörðun ráðsins nr. 2006/229/DIM frá 9. mars 2006 þar sem ákveðið er hvaða dag tiltekin ákvæði ákvörðunar 2005/211/DIM um innleiðingu nýrra aðgerða í Schengen-upplýsingakerfið, þ.m.t. í tengslum við baráttuna gegn hryðjuverkum, koma til framkvæmda sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér 18. maí 1999 um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Breytingin öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 2. maí 2006.
Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 4. maí 2006.
Geir H. Haarde.
Gunnar Snorri Gunnarsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|