Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1301/2021

Nr. 1301/2021 18. nóvember 2021

AUGLÝSING
um framkvæmd prófa og námsmats við Háskólann á Akureyri á haustmisseri 2021.

Þrátt fyrir ákvæði reglna um námsmat fyrir Háskólann á Akureyri nr. 921/2018 gildir eftir­farandi bókun háskólaráðs um námsmat á haustmisseri 2021:

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu vegna COVID-19 er ljóst að í einhverjum tilfellum þarf að breyta námsmati og fyrirkomulagi prófa á haustmisseri 2021. Breytingar á námsmati og fyrirkomulagi loka­prófa skal liggja fyrir í síðasta lagi 22. nóvember næstkomandi. Umsjónarkennarar námskeiða ákveða tilhögun námsmats og nauðsynlegar breytingar á námsmati í samráði við stjórnendur á fræða­sviði. Skal leitast við að fara eftir gildandi reglum um námsmat eftir því sem unnt er. Ef gerðar eru breytingar á fyrirkomulagi eða framkvæmd prófs eða öðru námsmati skal námsmat í endurtöku­próftíð vera sambærilegt og í reglulegri próftíð.

Nemendur sem staðist hafa námsmat í námskeiði á haustmisseri 2021 geta óskað eftir að fá birtri lokaeinkunn breytt í „staðið“ á námsferli.

Samkeppnispróf verða haldin á próftökustöðum og nemendum skipt upp í hópa í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda um fjöldatakmarkanir vegna farsóttar. Ef allir nemendur geta ekki tekið próf á sama tíma vegna fjöldatakmarkana er heimilt að dreifa próftöku yfir daginn.

Ákvarðanir um  framkvæmd prófa og námsmats  eru teknar í samræmi við leiðbeiningar stjórn­valda hverju sinni og er þessi ákvörðun kynnt með það að markmiði að eyða óvissu um fram­kvæmd prófa á haustmisseri til þess að létta álagi af nemendum vegna aðstæðna í samfélaginu vegna COVID-19 .

Auglýsing þessi, sem háskólaráð hefur samþykkt, er birt með stoð í lögum nr. 85/2008 um opin­bera háskóla og taka ákvæði hennar þegar gildi.

 

Háskólanum á Akureyri, 18. nóvember 2021.

 

Eyjólfur Guðmundsson rektor.


B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2021