Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 460/2020

Nr. 460/2020 18. maí 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017.

1. gr.

Í stað ákvæðis til bráðabirgða kemur nýtt ákvæði, svohljóðandi:

Ákvæði til bráðabirgða.

Útlendingi sem dvaldi hér á landi fyrir 20. mars 2020 í samræmi við 8. gr. reglugerðarinnar og 1. mgr. 49. gr. útlendingalaga en hefur ekki komist til síns heima vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar er heimilt að dvelja hér á landi án dvalarleyfis eða vegabréfsáritunar til og með 1. júlí 2020.

Ákvæði 1. mgr. kemur ekki í veg fyrir frávísun eða brottvísun þeirra sem voru í ólögmætri dvöl fyrir 20. mars 2020 eða frávísun eða brottvísun á öðrum grundvelli samkvæmt ákvæðum útlendinga­laga.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 49. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 18. maí 2020.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 19. maí 2020