Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hefur, í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd borgarinnar:
- Að eftirtaldar götur verði vistgötur:
- Norðurstígur.
- Nýlendugata, austan Ægisgötu.
- Að eftirtaldar gönguþveranir verði merktar sem gangbrautir:
- Yfir Skipholt vestan Stúfholts.
- Yfir Árvað austan Þingtorgs.
Ofangreint sé merkt með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum, í samræmi við reglugerð nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra, með síðari breytingum.
Skrifstofu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, 31. ágúst 2020.
Glóey Helgudóttir Finnsdóttir skrifstofustjóri.
|