Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1401/2018

Nr. 1401/2018 13. desember 2018

GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Grundarfjarðarbæjar.

I. KAFLI

Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs Grundarfjarðarbæjar ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

2. gr.

Slökkvilið Grundarfjarðarbæjar innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferða­kostn­aðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almanna­hagsmunum.

II. KAFLI

Lögbundin verkefni.

4. gr.

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 13.487 kr.

5. gr.

Öryggisvaktir á mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkomandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimtar eru að lágmarki 53.948 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

6. gr.

Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mann­virki. Innheimtar eru 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 53.948 kr., auk 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.

7. gr.

Dagsektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dag­sektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

8. gr.

Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar, að lágmarki 27.783 kr. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

9. gr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 13.487 kr., fyrir hverja byrjaða klukku­stund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru inn­heimtar 53.948 kr., auk 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um bruna­varnir.

10. gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.

Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 13.487 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar sbr. 9. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

III. KAFLI

Önnur verkefni og þjónusta.

11. gr.

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 13.487 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkj­unar­tíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið, er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tíma­gjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 18.206 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 145.648 kr.

12. gr.

Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Slökkvistörf og viðbúnaður við meng­unar­óhöppum á sjó og í lofti falla ekki undir lögin. Lögin ná því til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvi­störf í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri. Lögin taka ekki til eldvarna í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 145.648 kr., auk 18.206 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

13. gr.

Viðbúnaður vegna upphreinsunar.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á meng­unar­óhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skuli beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 145.648 kr., auk 18.206 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

14. gr.

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkvi­liði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarks­gjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 145.648 kr., auk 18.206 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

15. gr.

Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 18.206 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

16. gr.

Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælubíla t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki Slökkviliðs Grundarfjarðarbæjar skulu aðeins notuð af starfsmönnum þess. Innheimtar eru að lágmarki 53.948 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.

17. gr.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir. Innheimtar eru að lágmarki 53.948 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

18. gr.

Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 53.948 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 13.487 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

IV. KAFLI

Innheimta.

19. gr.

Grundarfjarðarbær annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta, sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. til og með 10. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari reiknast upp miðað við launavísitölu á hverjum tíma miðað við grunnvísitölu 670,7 stig í desember 2018.

V. KAFLI

Gildistaka og lagastoð.

20. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breyt­ingum, er samþykkt af bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar 13. desember 2018. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1103/2014.

Grundarfirði, 13. desember 2018.

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 6. mars 2019