Bakkastaðir 41. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 3. júlí 2020, breytingu á deiliskipulagi Staðahverfis vegna lóðarinnar nr. 41 við Bakkastaði. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til vesturs fyrir viðbyggingu. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Starmýri 2. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 12. mars 2020, breytingu á deiliskipulaginu Safamýri/Álftamýri vegna lóðar nr. 2 við Starmýri. Í breytingunni felst að hækka hús nr. 2a um tvær hæðir frá núverandi ástandi og bæta við byggingarreit til vesturs fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi sem snýr að Álftamýri. Breytingin gerir ráð fyrir að á lóðinni verði heimild fyrir íbúðir, verslunar- og þjónustustarfsemi og aðra atvinnustarfsemi sem samræmist notkunarskilgreiningum í aðalskipulagi Reykjavíkur. Auk þess er gert ráð fyrir breytingum á lóð og nýjum bílastæðaskilmálum í samræmi við áherslur aðalskipulags. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Malarhöfði 6. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 21. ágúst 2020, breytingu á deiliskipulagi Bíldshöfða-Sævarhöfða vegna lóðarinnar nr. 6 við Malarhöfða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til austurs og suðurs ásamt því að byggingarmagn og nýtingarhlutfall lóðarinnar er aukið. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Tunguháls 6. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 21. ágúst 2020, breytingu á skilmálum deiliskipulags Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 6 við Tunguháls. Í breytingunni felst að leyfilegt er að hækka nýtingarhlutfall lóðar í 1,1 ofanjarðar og að gera skal ráð fyrir 1 bílastæði á hverja 50 m² fyrir skrifstofu og verslunarrými og 1 bílastæði á hverja 200 m² í geymslum, vöruhúsum, verkstæðum eða tækjarýmum. Á það bæði við um eldri og nýja byggingarhluta. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Krókháls 7A. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 21. ágúst 2020, breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7A við Krókháls. Í breytingunni felst að hæðarkóti byggingar er lækkaður til samræmis við Hestháls 14, byggingarreitur 1. hæðar er stækkaður til vesturs og austurs ásamt því að lengjast fjóra metra til suðurs, byggingarreitur 2. og 3. hæðar lengist til vesturs, nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,7 í 0,9, aðgengi að 1. hæð verður frá Hesthálsi, aðgengi að 2. og 3. hæð verður frá Krókhálsi o.fl. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 1. september 2020.
Björn Axelsson.
|