1. gr.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er heimilt að leggja á sorphirðugjald til að standa undir kostnaði bæjarins af sorphirðu og sorpeyðingu.
2. gr.
Sorphirðugjald skal lagt á allar íbúðir sem virtar eru fasteignamati. Einnig skal sorphirðugjald lagt á aukaíbúðir í húsum sem virt eru fasteignamati sem óskiptar eignir. Sorphirðugjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu sorpeyðingu og urðun sorps. Gjalddagar sorphirðugjalds eru hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.
3. gr.
Sorphirðugjald vegna íbúðarhúsnæðis kr. 29.000 er innheimt árlega með fasteignagjöldum. Innifalið í því gjaldi er eitt grátt sorpílát fyrir óflokkað sorp auk blárrar endurvinnslutunnu fyrir pappír sem og sorphreinsun og sorpeyðing vegna þess.
Fyrir hvert aukasorpílát heimila er á sama hátt innheimt árlega, og fyrirfram, gjald eftir því sem hér segir:
1. |
fyrir 240 l gráa tunnu |
kr. 29.000 |
2. |
fyrir 240 l bláa tunnu |
kr. 29.000 |
3. |
fyrir 660 l gám |
kr. 74.500 |
Heimili sem óska eftir aukasorpíláti skulu beina ósk þar að lútandi til þjónustuvers Mosfellsbæjar.
4. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar með vísan til 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 með síðari breytingum. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1209/2017.
Mosfellsbæ, 10. janúar 2019.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.
|