Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkt eftirfarandi skipulagsáætlun:
Sólheimahjáleiga, deiliskipulagsbreyting. Breyting skipulags tekur til stækkunar skipulagssvæðis, byggingar starfsmannahúsa, íbúðarhúss og stækkunar núverandi íbúðarhúss. Einnig er afmörkun lóða lagfærð (skv. þjóðskrá) og nýjar lóðir, sem stofnaðar hafa verið eru settar inn á skipulagið. Innan skipulagssvæðisins hefur verið rekin ferðaþjónusta samhliða hefðbundinni landbúnaðarstarfsemi. Samþykkt í sveitarstjórn þann 11. desember 2019.
Ofangreind skipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Vík í Mýrdal, 30. janúar 2020.
George Frumuselu, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|