Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1533/2020

Nr. 1533/2020 17. desember 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna Miðmundarholts (Þ5).

Skipulagsstofnun staðfesti 17. desember 2020 breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. nóvember 2020.
Í breytingunni felst að um 10 ha íbúðarsvæði (Í3) er breytt í verslunar- og þjónustusvæði (Þ5) þar sem gert er ráð fyrir gistiþjónustu á sjö lóðum auk þess sem íbúðir eru einnig heimilaðar á svæðinu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 17. desember 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2021