Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 267/2023

Nr. 267/2023 2. mars 2023

SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar, nr. 530/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. samþykktarinnar:

  1. 4. tölul. B-liðar 48. gr. orðast svo:
    Félagsmálanefnd.Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálanefnd fer með öldrunarmál skv. 7. gr. laga nr. 125/1999, jafnréttismál skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020, málefni fatlaðs fólks skv. lögum nr. 38/2018, húsnæðismál skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 og yfirstjórn barnaverndarþjónustu skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi.
  2. Við C-lið 48. gr. samþykktarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
    1. Umdæmisráð barnaverndar. Grindavíkurbær stendur sameiginlega að umdæmisráði barna­verndar í samstarfi við önnur sveitarfélög samkvæmt samningi þar um, í sam­ræmi við 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum. Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa sveitarfélagsins í valnefnd til fimm ára sem annast skipan umdæmis­ráðs skv. 2. gr. samn­ingsins.

 

2. gr.

Við samþykktina bætist nýr viðauki 2.1. um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Grindavíkur samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem birtur er með samþykkt þessari.

 

3. gr.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Grindavíkur hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 2. mars 2023.

 

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Hafdís Gísladóttir.

 

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 17. mars 2023