Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 856/2019

Nr. 856/2019 17. september 2019

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis sunnan Glerár.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Grímseyjargötu 2 og Gránufélagsgötu 51.
Breytingin felur í sér að byggingarreitir stækka, hæð bygginga hækkar, nýtingarhlutfall eykst, kvöð um umferðarrétt minnkar, gert er ráð fyrir sameiginlegri inn- og útkeyrslu inn á lóðirnar frá Laufás­götu og gert er ráð fyrir að fjöldi bílastæða verði 1 stæði á hverja 100 m².
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarbæjar, 17. september 2019,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 1. október 2019