Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 866/2019

Nr. 866/2019 25. september 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulagsmál í Akraneskaupstað.

Krókatún 3.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 10. september 2019 breytingu á deiliskipulagi, Króka­tún - Deildartún vegna Krókatúns 3. Í breytingunni felst m.a. að nýtingarhlutfall lóðar verður 0,34 og húsið hækkar um 1 m. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin öðlast þegar gildi.

Asparskógar 18.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 10. september 2019 breytingu á deiliskipulagi Skógar­hverfis, 1. áfanga, vegna Asparskóga 18. Breytingin felst í að bætt verður við bílastæðum á lóð með innkeyrslu frá Viðjuskógum og aðkoma að bílastæðakjallara verður frá bílastæðum við Aspar­skóga 16 og 18. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulags­laga nr. 123/2010, breytingin öðlast þegar gildi.

Akranesi, 25. september 2019.

Sigurður Páll Harðarson,
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.


B deild - Útgáfud.: 2. október 2019