Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 78/2018

Nr. 78/2018 10. janúar 2018

GJALDSKRÁ
fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, efnalögum nr. 61/2013, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli og með reglugerðum settum með stoð í þeim, er eftirlitinu heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald kr. 12.844
Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun kr. 19.000
Tóbaksleyfisgjald kr. 19.000

Af eftirlitsskyldri starfsemi er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að innheimta árlegt gjald af starfsemi eins og fram kemur á fylgiskjali, viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglubundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið.

Ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu síðastliðin fjögur ár, hefur haft vottað gæðakerfi síðastliðin fjögur ár eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni síðastliðin fjögur ár, sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld samkvæmt þessari grein.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald, sem því nemur.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og auglýsingakostnaður ef við á.  
     
Ný starfsemi:
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks ásamt auglýsingakostnaði ef við á.  
     
Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,  
  ferðar, úttektar og frágangs,ásamt auglýsingakostnaði ef við á.  

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 15 dögum eftir útgáfu­dag reiknings.

5. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum greiðist eitt tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni og önnur sérstök verkefni greiðist samkvæmt reikningi. Fyrir húsa­skoðun á íbúðum, með einföldu mati á myglu, greiðist eitt tímagjald.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

6. gr.

Af starfsemi, sem upp er talin í viðauka með lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur eftirlit með samkvæmt samningi við Umhverfis­stofnun, skal greiða gjöld samkvæmt 2. gr. Matvælafyrirtæki sem Matvælastofnun hefur framselt eftirlit með til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra samkvæmt samningi, skulu greiða gjöld sam­kvæmt 2. gr.

7. gr.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra innheimtir gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef raun­kostn­aður við rannsókn skv. reikningi frá rannsóknarstofu er hærri en sem nemur gjaldi heilbrigðis­eftirlits fyrir rannsókn skal innheimta raunkostnað að viðbættu umsýslugjaldi.

Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við viðauka A.

8. gr.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra innheimtir öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari og sbr. fylgi­skjal sem birt er með gjaldskránni. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 7/1998 um holl­ustu­hætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Gjalddagi gjalds samkvæmt 2. gr. er útgáfu­dagur reiknings og eindagi 15 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

9. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

10. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er samkvæmt 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, með síðari breytingum, samkvæmt 8. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir, með síðari breytingum og samkvæmt X. kafla laga um matvæli nr. 93/1995 og öðlast gjaldskráin gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1322/2016 fyrir matvæla-, heilbrigðis- og meng­unar­varna­eftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

Sauðárkróki, 10. janúar 2018.

F.h. heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis vestra,

Sigurjón Þórðarson framkvæmdastjóri.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2018