Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 869/2021

Nr. 869/2021 8. júlí 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar, Hrafnagil og efnistökusvæði.

Skipulagsstofnun staðfesti, 8. júlí 2021, breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. júlí 2021.
Í breytingunni felst að vegtengingum Hrafnagilshverfis við Eyjafjarðarbraut vestri er breytt og mörkuð er stefna um tvö ný efnistökusvæði í Eyjafjarðará í landi Kropps (E33) og í landi Reykhúsa (E34). Skipulagsákvæðum efnistöku vegna 1. áfanga nýrrar Eyjafjarðarbrautar er breytt.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 8. júlí 2021.

F.h. forstjóra,

Ólafur Árnason.


B deild - Útgáfud.: 22. júlí 2021