Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 138/2018

Nr. 138/2018 21. desember 2018

LÖG
um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLI

Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009,
með síðari breytingum.

1. gr.

    Í stað „9,45 kr.“, „8,25 kr.“, „11,65 kr.“ og „10,35 kr.“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: 11,45 kr.; 10,00 kr.; 14,10 kr.; og: 12,55 kr.

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 1. gr. skal fjárhæð kolefnisgjalds vera 10,40 kr. á hvern lítra af gas- og dísilolíu, 9,10 kr. á hvern lítra af bensíni, 12,80 kr. á hvert kílógramm af brennsluolíu og 11,40 kr. á hvert kílógramm af jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni til 1. janúar 2020.

II. KAFLI

Breyting á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995,
með síðari breytingum.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. Í stað „119,60 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 122,60 kr.
  2. Í stað „108,95 kr.“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 111,65 kr.
  3. Í stað „147,40 kr.“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 151,10 kr.
  4. Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
        Áfengisgjald skal lagt á í samræmi við upplýsingar um vínandamagn sem tilgreindar eru á umbúðum vöru.
        Telji tollstjóri eða ríkisskattstjóri að upplýsingar á umbúðum séu rangar er þeim heimilt að mæla vínandamagn eða fela það öðrum viðurkenndum aðila og miðast álagning áfengis­gjalds þá við niðurstöðu þeirra mælinga. Kostnaður við mælingar skal greiddur af fram­leið­anda eða innflytjanda vörunnar hafi vínandamagn verið ranglega tilgreint.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:

  1. Í stað „491,05 kr.“ í 1. tölul. kemur: 503,35 kr.
  2. Í stað „27,30 kr.“ í 2. tölul. kemur: 28,00 kr.
  3. Í stað „27,30 kr.“ í 3. tölul. kemur: 28,00 kr.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:

  1. Í stað „616,85 kr.“ í 1. tölul. kemur: 632,25 kr. 
  2. Í stað „34,25 kr.“ í 2. tölul. kemur: 35,10 kr.

III. KAFLI

Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.,
nr. 29/1993, með síðari breytingum.

6. gr.

    Í stað „27,35 kr.“ í 14. gr. laganna kemur: 28,05 kr.

7. gr.

    Í stað „44,10 kr.“ og „46,75 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: 45,20 kr.; og: 47,90 kr.

IV. KAFLI

Breyting á lögum um olíugjald og kílómetragjald, nr. 87/2004,
með síðari breytingum.

8. gr.

    Í stað „61,30 kr.“ í 4. mgr. 1. gr. laganna kemur: 62,85 kr.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:

  1. 4. mgr. orðast svo:

        Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetra-
gjald, kr.
Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetra-
gjald, kr.
10.000–11.000 0,32 21.001–22.000 7,75
11.001–12.000 0,99 22.001–23.000 8,44
12.001–13.000 1,67 23.001–24.000 9,10
13.001–14.000 2,36 24.001–25.000 9,78
14.001–15.000 3,03 25.001–26.000 10,44
15.001–16.000 3,71 26.001–27.000 11,13
16.001–17.000 4,38 27.001–28.000 11,82
17.001–18.000 5,05 28.001–29.000 12,49
18.001–19.000 5,73 29.001–30.000 13,15
19.001–20.000 6,39 30.001–31.000 13,83
20.001–21.000 7,09 31.001 og yfir 14,50
  1. 6. mgr. orðast svo:

        Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum ökutækjum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetra-
gjald, kr.
Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg
Kílómetra-
gjald, kr.
5.000–6.000 9,51 18.001–19.000 25,11
6.001–7.000 10,29 19.001–20.000 26,24
7.001–8.000 11,08 20.001–21.000 27,40
8.001–9.000 11,87 21.001–22.000 28,55
9.001–10.000 12,63 22.001–23.000 29,66
10.001–11.000 13,76 23.001–24.000 30,80
11.001–12.000 15,23 24.001–25.000 31,94
12.001–13.000 16,69 25.001–26.000 33,08
13.001–14.000 18,14 26.001–27.000 34,20
14.001–15.000 19,61 27.001–28.000 35,36
15.001–16.000 21,05 28.001–29.000 36,50
16.001–17.000 22,51 29.001–30.000 37,64
17.001–18.000 23,99 30.001–31.000 38,75
    31.001 og yfir 39,90

10. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Ef ekki er komið með ökutæki til álestrar á öðru álestrartímabili ársins 2018, sem stendur frá 1. til 15. desember 2018, sbr. 1. mgr. 14. gr., skal reikna út meðaltal ekinna kílómetra á dag á tímabilinu milli álestra. Þá skal hið nýja gjald innheimt eftir meðaltalsakstri eftir 1. janúar 2019.

    Við ákvörðun kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds skv. 13. gr. á álestrartímabilinu 1. júní til 15. júní 2019 skal ríkisskattstjóri deila eknum kílómetrum frá fyrri álestri með dagafjölda sama tímabils og reikna kílómetragjald af hverjum eknum kílómetra miðað við fjölda gjaldskyldra daga fyrir 1. janúar 2019 og fjölda gjaldskyldra daga eftir 1. janúar 2019.

V. KAFLI

Breyting á lögum um bifreiðagjald, nr. 39/1988,
með síðari breytingum.

11. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:

  1. Í stað „5.925 kr.“ og „142 kr.“ í 2. mgr. kemur: 6.075 kr.; og: 146 kr.
  2. Í stað „55.510 kr.“, „2,37 kr.“ og „87.375 kr.“ í 4. mgr. kemur: 56.900 kr.; 2,43 kr.; og: 89.560 kr.

VI. KAFLI

Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert
eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 99/1999, með síðari breytingum
.

12. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. laganna:

  1. Í stað „0,0385%“ í a-lið 1. tölul. kemur: 0,0376%.
  2. Í stað „0,4403%“ í 2. tölul. kemur: 0,42%.
  3. Í stað „0,0236%“ og „0,0128%“ í 6. tölul. kemur: 0,0254%; og: 0,0137%.
  4. Í stað „0,0091%“ í 9. tölul. kemur: 0,0084%.
  5. Í stað „0,0087%“ í 11. tölul. kemur: 0,0092%.
  6. Í stað „0,01%“ í 12. tölul. kemur: 0,0094%. 
  7. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Náttúruhamfaratrygging Íslands skal greiða fastagjald sem nemur 1.200.000 kr.

VII. KAFLI

Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara,
nr. 166/2011, með síðari breytingum
.

13. gr.

    Í stað „0,00888%“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 0,00835%.

VIII. KAFLI

Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999,
með síðari breytingum.

14. gr.

    Í stað „11.175 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: 11.454 kr.

15. gr.

    Í stað „2017 og 2018“ í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2017, 2018 og 2019.

16. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Vegna útreiknings á dvalarframlagi skv. 21. gr. er á tímabilinu 1. janúar 2019 til og með 31. desember 2019 unnt að óska eftir því að Tryggingastofnun ríkisins beri saman útreikning dvalar­framlags fyrir og eftir gildistöku laga nr. 166/2006 og laga nr. 120/2009. Ef samanburðurinn sýnir aukna kostnaðarþátttöku heimilismanns frá því sem var fyrir gildistöku þeirra laga skal leiðrétta dvalarframlag vegna framangreinds tímabils til samræmis við það.

IX. KAFLI

Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.

17. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða í lögunum:

  1. Í stað „2018“ í 14. tölul. kemur: 2019.
  2. Í stað „2018“ þrívegis í 1. málsl. 18. tölul. kemur: 2019. 
  3. Í stað „31,75%“ í 1. málsl. 18. tölul. kemur: 36,23%.

X. KAFLI

Breyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum.

18. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum:

  1. Í stað „2018“ þrívegis kemur: 2019. 
  2. Í stað „31,75%“ kemur: 36,23%.

XI. KAFLI

Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða,
nr. 129/1997, með síðari breytingum
.

19. gr.

    Í stað „1. janúar 2018 til 31. desember 2018“ í ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum kemur: 1. janúar 2019 til 31. desember 2019.

20. gr.

    Í stað orðanna „og 2017 “ í ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum kemur: 2017, 2018 og 2019.

XII. KAFLI

Breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar,
nr. 78/1997, með síðari breytingum
.

21. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði laganna skal skuldbinding ríkisins skv. 60. gr. á árinu 2019 samkvæmt sér­stöku samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar vera 1.852,8 millj. kr. Framlag til Kristni­sjóðs skal vera 75,9 millj. kr. á árinu 2019.

XIII. KAFLI

Breyting á lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, með síðari breytingum.

22. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 925 kr. á mánuði árið 2019 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.

XIV. KAFLI

Breyting á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, með síðari breytingum.

23. gr.

    Í stað „2018“ og „627 kr.“ í 4. mgr. 14. gr. laganna kemur: 2019; og: 1.256 kr.

XV. KAFLI

Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013, með síðari breytingum.

24. gr.

    Í stað „17.100 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: 17.500 kr.

XVI. KAFLI

Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.

25. gr.

    Í stað „og 2018“ í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 2018 og 2019.

XVII. KAFLI

Breyting á lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og
starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012, með síðari breytingum
.

26. gr.

    Í stað „ársins 2018“ í ákvæði til bráðabirgða III í lögunum kemur: ársins 2019.

XVIII. KAFLI

Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, með síðari breytingum.

27. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á viðauka IV við lögin:

  1. Í stað „0,20 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 2710.1920 kemur: 35,00 kr./kg.
  2. Við bætist nýtt tollskrárnúmer, svohljóðandi:
      2710.1940  – – – Brennsluolíur 0,20 kr./kg

28. gr.

    Við kaflann Úr 8701 í viðauka XVI við lögin bætist nýr undirliður, 8701.20, ásamt tveimur nýjum tollskrárnúmerum, svohljóðandi:

  2710.1940  – – Að heildarþyngd yfir 5 tonn:   
  8701.2021 – – – Nýjar 18.000 kr./stk. 
  8701.2029 – – – Notaðar 18.000 kr./stk.

XIX. KAFLI

Breyting á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, með síðari breytingum.

29. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. er ráðherra heimilt að leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem fram kemur mat á líklegri þróun samfélags-, atvinnu-, umhverfis- og byggðaþátta og lýðfræðilegra breytna til næstu áratuga og áhrifum þeirra á afkomu, fjárhagsstöðu og skuldbindingar opinberra aðila eigi síðar en í árslok 2019.

XX. KAFLI

Breyting á lögum um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.,
lögum um bifreiðagjald og lögum um virðisaukaskatt, nr. 117/2018.

30. gr.

    2. málsl. 7. efnismgr. 3. gr. laganna orðast svo: Krafan fellur í gjalddaga 15. dag næsta mán­aðar á eftir álagningu vörugjalds samkvæmt þessu ákvæði.

XXI. KAFLI

Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.

31. gr.

    B-liður 3. mgr. 57. gr. b laganna orðast svo: vaxtagjöld eru greidd vegna lánaviðskipta innan samstæðu sem nýtur heimildar til samsköttunar skv. 55. gr., eða uppfyllir skilyrði til samsköttunar, þegar öll félög samstæðu eru heimilisföst á Íslandi.

XXII. KAFLI

Gildistaka.

32. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

    Ákvæði 14. gr. kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2019 vegna tekna ársins 2018.

    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 1.–13., 17., 19., 23.–28. og 31. gr. gildi 1. janúar 2019.

Gjört á Bessastöðum, 21. desember 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 27. desember 2018