Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 639/2020

Nr. 639/2020 10. júní 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Kirkjuhvolsreits á Hvolsvelli.

Skipulagsstofnun staðfesti 10. júní 2020 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2020.
Í breytingunni felst að svæði fyrir samfélagsþjónustu, Kirkjuhvolsreitur S-116, er stækkað um 0,8 ha vegna áformaðrar stækkunar heilsugæslustöðvar, hjúkrunar- og dvalarheimilis og byggingar íbúða fyrir 60 ára og eldri. Samhliða minnkar íbúðarsvæði ÍB-114 og landbúnaðarsvæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 10. júní 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. júní 2020