Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 125/2021

Nr. 125/2021 28. nóvember 2021

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

 

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands ber stjórnarmálefni undir ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands sem hér segir:

 

1. gr.

Forsætisráðuneyti.

Forsætisráðuneyti fer með mál er varða:

  1.    Stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráð Íslands í heild, þar á meðal:
    1. Embætti forseta Íslands, þ.m.t. ákvörðun kjördags, embættisgengi og embættis­bústað.
    2. Alþingi.
    3. Ríkisráð Íslands.
    4. Ríkisstjórn Íslands.
    5. Skipun ráðherra og lausn.
    6. Skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.
    7. Skiptingu starfa milli ráðherra.
    8. Skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta.
    9. Ráðherranefndir.
    10. Forystu og samhæfingu innan Stjórnarráðs Íslands.
    11. Stjórnarfar almennt, þ.m.t. lög um Stjórnarráð Íslands, stjórnsýslulög og upplýsinga­lög.
    12. Siðareglur fyrir ráðherra og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands.
    13. Málstefnu fyrir Stjórnarráð Íslands.
    14. Ráðstöfun skrifstofuhúsa ráðuneyta og gestahúsa ríkisstjórnarinnar, þ.m.t. Þingvalla­bæjarins.
    15. Ráðgjafa um upplýsingarétt almennings.
    16. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
  2. Þjóðhagsmál, þar á meðal:
    1. Hagstjórn almennt.
    2. Ráðherranefndir um efnahagsmál og ríkisfjármál.
    3. Gjaldmiðil Íslands.
    4. Seðlabanka Íslands.
    5. Hagskýrslugerð og upplýsingar um landshagi, þ.m.t. málefni Hagstofu Íslands.
  3. Mannréttindi og mannréttindasáttmála.
  4. Jafnréttismál, þar á meðal:
    1. Jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
    2. Stjórnsýslu jafnréttismála.
    3. Jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
    4. Jafna meðferð á vinnumarkaði.
    5. Kynrænt sjálfræði.
    6. Jafnréttisstofu.
    7. Kærunefnd jafnréttismála.
    8. Jafnréttissjóð Íslands.
    9. Sérfræðinefnd um breytingar á kynskráningu barna og varanlegar breytingar á ódæmi­gerðum kyneinkennum barna.
  5. Þjóðartákn og orður, þar á meðal:
    1. Fána Íslands og ríkisskjaldarmerki.
    2. Þjóðsöng Íslendinga.
    3. Hina íslensku fálkaorðu.
    4. Önnur heiðursmerki.
  6. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  7. Annað, þar á meðal:
    1. Þjóðaröryggisráð.
    2. Almannavarna- og öryggismálaráð.
    3. Vísinda- og tækniráð.
    4. Þjóðlendur og málefni óbyggðanefndar.
    5. Embætti ríkislögmanns.
    6. Hrafnseyri við Arnarfjörð.
    7. Greiðslu bóta vegna dóms Hæstaréttar í máli nr. 521/2017.
    8. Varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands.
    9. Vernd uppljóstrara.
  8. Sérstök áherslumál á sviði samhæfingar:
    1. Réttlát umskipti.
    2. Velsældaráherslur.
    3. Sjálfbær þróun.

 

2. gr.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Nýsköpun og stuðningsumhverfi atvinnulífs, þar á meðal:
    1. Atvinnuþróun, tæknirannsóknir og nýsköpun.
    2. Opinberan stuðning við nýsköpun, sbr. þó g-lið 2. tölul. 5. gr.
    3. Tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
    4. Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
    5. Opinberar fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum.
    6. Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð.
    7. Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
    8. Tækniþróunarsjóð.
  3. Viðskiptalíf, almenna lagaumgjörð, þar á meðal:
    1. Opinberar eftirlitsreglur.
    2. Rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
    3. Frum- og milliinnheimtu peningakrafna.
    4. Víxla, tékka og skuldabréf.
    5. Fyrningu kröfuréttinda.
    6. Ábyrgðarmenn.
    7. Viðskiptaleyndarmál.
    8. Félagarétt, þ.m.t. bókhald, endurskoðendur og ársreikninga.
    9. Lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.
    10. Skráningu fyrirtækja og félaga og málefni fyrirtækjaskrár, ársreikningaskrár og almanna­heillafélagaskrár.
    11. Skráningu raunverulegra eigenda.
    12. Félög til almannaheilla.
    13. Sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur.
    14. Framkvæmd útboða.
    15. Samkeppnismál.
    16. Samkeppniseftirlitið.
    17. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
    18.  Staðla og Staðlaráð Íslands.
    19.  Löggildingu endurskoðenda og málefni endurskoðendaráðs.
  4. Fjölmiðla, þar á meðal:
    1. Mynd- og hljóðmiðla.
    2. Netmiðla.
    3. Prentmiðla.
    4. Eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum.
    5. Ríkisútvarpið.
    6. Fjölmiðlanefnd.
  5. Höfundarétt, þar á meðal:
    1. Fylgiréttargjald samkvæmt höfundalögum og lögum um verslunaratvinnu.
    2. Sameiginlega umsýslu höfundaréttar.
    3. Úrskurðarnefnd höfundaréttarmála.
  6. Ábyrgðarreglur og efnisréttindi á netinu, þ.m.t. höfundarétt.
  7. Sjávarútveg og veiði í ám og vötnum, eldi og ræktun nytjastofna, þar á meðal:
    1. Stjórn á verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafs­botnsins.
    2. Veiðigjöld.
    3. Rannsóknir og eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auð­linda hafsins og hafsbotnsins.
    4. Hafrannsóknastofnun.
    5. Framkvæmd fiskveiðisamninga við erlend ríki.
    6. Fiskvinnslu og aðra vinnslu úr sjávarfangi.
    7. Skiptaverðmæti sjávarafla.
    8. Uppboðsmarkað sjávarafla.
    9. Eldi hvers konar nytjastofna í sjó eða ferskvatni, skipulag og eftirlit með því.
    10. Gjaldtöku vegna fiskeldis í sjó.
    11. Fiskeldissjóð.
    12. Veiði í ám og vötnum.
    13. Rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og ráðgjöf um nýtingu þeirra, þ.m.t. málefni Veiði­málastofnunar.
    14. Fiskræktarsjóð.
    15. Matsnefnd samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði.
    16. Nýsköpun og þróun í sjávarútvegi.
    17. Fiskistofu.
    18. Málefni úrskurðarnefndar um ólögmætan sjávarafla.
    19. Verðlagsstofu skiptaverðs.
    20. Málefni úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna.
  8. Landbúnað, matvæli og matvælaöryggi, þar á meðal:
    1. Framleiðslu landbúnaðarafurða.
    2. Búfjárhald og slátrun.
    3. Verðlagningu og sölu á búvörum.
    4. Inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
    5. Eftirlit með inn- og útflutningi dýra og plantna og erfðaefna þeirra.
    6. Velferð dýra.
    7. Varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
    8. Framkvæmd búnaðarlaga.
    9. Stuðning ríkisins við framleiðslu og markaðsmál, þ.m.t. framkvæmd búvörulaga.
    10. Almenn jarðamál, ábúðarmál, afrétti, fjallskil og girðingar, þ.m.t. málefni úttektar­manna og yfirmatsnefndar samkvæmt ábúðarlögum.
    11. Nýtingu hlunninda jarða.
    12. Dýralæknaþjónustu, þ.m.t. starfsleyfi dýralækna.
    13. Heilbrigðiseftirlit með framleiðslu, vinnslu, inn- og útflutningi og markaðssetningu matvæla og fóðurs.
    14. Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum.
    15. Heilbrigði plantna og varnir gegn plöntusjúkdómum.
    16. Eftirlit með sáðvöru og áburði.
    17. Hagþjónustu landbúnaðarins.
    18. Matvælarannsóknir.
    19. Matvælasjóð.
    20. Matvælastofnun.
    21. Úrskurðarnefndir á sviði landbúnaðar.
    22. Bjargráðasjóð.
  9. Skóga, skógrækt og landgræðslu, þar á meðal:
    1. Skógræktina.
    2. Landgræðsluna.
  10. Iðnað, verslun og þjónustu, þar á meðal:
    1. Iðnað, þ.m.t. verksmiðjuiðnað, handiðnað, stóriðju og fjárfestingarsamninga.
    2. Mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.
    3. Skipan ferðamála.
    4. Ferðagjafir.
    5. Ferðamálastofu.
    6. Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
    7. Veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
    8. Bílaleigur.
    9. Skapandi greinar í þágu atvinnuþróunar.
    10. Sölu fasteigna og skipa.
    11. Eftirlitsnefnd fasteignasala.
    12. Verslunarskrár, firmu og prókúruumboð.
    13. Umboðssöluviðskipti.
    14. Starfsréttindi í iðnaði.
    15. Löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.
  11. Neytendamál, þar á meðal:
    1. Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
    2. Ráðstafanir gegn óréttmætri takmörkun á netumferð o.fl.
    3. Vöruöryggi, þ.m.t. vörur unnar úr eðalmálmum.
    4. Neytendalán.
    5. Lausafjárkaup, fasteignakaup, neytendakaup og þjónustukaup.
    6. Úrskurðaraðila á sviði neytendamála.
    7. Samningarétt.
    8. Pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.
    9. Ferðatryggingasjóð.
    10. Skiptileigusamninga fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum o.fl.
    11. Neytendasamninga.
    12. Neytendastofu.
    13. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
    14. Áfrýjunarnefnd neytendamála.

 

3. gr.

Dómsmálaráðuneyti.

Dómsmálaráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Ákæruvald, þar á meðal:
    1. Embætti ríkissaksóknara.
    2. Embætti héraðssaksóknara.
  3. Dómstóla, aðra en félagsdóm, þar á meðal:
    1. Dómstólasýsluna.
    2. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara.
    3. Nefnd um dómarastörf.
  4. Réttarfar, þar á meðal:
    1. Meðferð einkamála.
    2. Meðferð sakamála.
    3. Aðför, kyrrsetningu, lögbann og löggeymslu.
    4. Gjaldþrotaskipti, greiðslustöðvun og nauðasamninga.
    5. Tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
    6. Nauðungarsölur.
    7. Lögbókandagerðir.
    8. Öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.
    9. Nálgunarbann og brottvísun af heimili.
  5. Réttaraðstoð, þar á meðal:
    1. Gjafsókn, þ.m.t. málefni gjafsóknarnefndar.
    2. Réttaraðstoð vegna nauðasamninga.
    3. Gagnkvæma alþjóðlega réttaraðstoð.
  6. Refsirétt.
  7. Refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði.
  8. Skaðabótarétt og sanngirnisbætur, þar á meðal:
    1. Bætur til þolenda afbrota, þ.m.t. málefni bótanefndar um greiðslu bóta til þolenda afbrota.
    2. Sanngirnisbætur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur.
    3. Skaðabætur utan samninga.
    4. Niðurjöfnunarmenn sjótjóns.
  9. Lögmenn, dómtúlka og skjalaþýðendur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar lögmanna.
  10. Framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa.
  11. Birtingu laga og stjórnvaldserinda, þar á meðal:
    1. Lagasafn.
    2. Lögbirtingablað.
    3. Stjórnartíðindi.
  12. Eignarrétt og veðrétt, þar á meðal:
    1. Eignar- og afnotarétt fasteigna.
    2. Framkvæmd eignarnáms, er eigi ber undir annað ráðuneyti, þ.m.t. málefni mats­nefndar eignarnámsbóta.
    3. Þinglýsingar.
    4. Landamerki.
    5. Landskipti.
    6. Hefð.
  13. Fullnustu refsinga, þar á meðal:
    1. Fangelsi.
    2. Fangavist.
    3. Reynslulausn fanga og samfélagsþjónustu.
    4. Flutning dæmdra manna.
    5. Náðun og sakaruppgjöf.
    6. Fangelsismálastofnun.
  14. Almannavarnir.
  15. Leit og björgun, þar á meðal:
    1. Samræmda neyðarsímsvörun.
    2. Vöktun innviða.
  16. Lögreglu og löggæslu, þar á meðal:
    1. Landamæravörslu.
    2. Gæslu landhelgi og fiskimiða.
    3. Skipströnd og vogrek.
    4. Framsal og afhendingu sakamanna.
    5. Schengen.
    6. Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
    7. Erfðaefnisskrá lögreglu.
    8. Öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
    9. Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu.
    10. Embætti ríkislögreglustjóra.
    11. Lögreglustjóraembætti.
    12. Nefnd um eftirlit með lögreglu.
  17. Sjómælingar og sjókortagerð.
  18. Vopnamál.
  19. Áfengislög.
  20. Sifjarétt, þar á meðal:
    1. Málefni barna, nema barnavernd, þ.m.t. ættleiðingar og brottnám.
    2. Hjúskap.
  21. Persónurétt og persónuvernd, þar á meðal:
    1. Lögræði.
    2. Mannanöfn og málefni mannanafnanefndar.
    3. Persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
    4. Vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi.
    5. Persónuvernd.
  22. Erfðarétt, lög um horfna menn og yfirfjárráð, skipti á dánarbúum.
  23. Kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.
  24. Trúmál, þar á meðal:
    1. Trúfélög.
    2. Þjóðkirkjuna.
    3. Sóknargjöld.
    4. Frið vegna helgihalds.
    5. Lífsskoðunarfélög.
  25. Skráningu einstaklinga.
  26. Persónuskilríki, þ.m.t. vegabréf, önnur en diplómatísk.
  27. Ríkisborgararétt.
  28. Málefni útlendinga, að frátöldum atvinnuleyfum, sbr. o-lið 4. tölul. 4. gr. og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. h-lið 2. tölul. 4. gr., þar á meðal:
    1. Útlendingastofnun.
    2. Kærunefnd útlendingamála.
  29. Happdrætti, veðmálastarfsemi, talnagetraunir og almennar fjársafnanir.
  30. Sýslumenn og hreppstjóra.
  31. Kosningar:
    1. Kjör til forseta Íslands, kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, þjóðaratkvæða­greiðslur og aðrar almannakosningar sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
    2. Úrskurðarnefnd kosningamála.
  32. Starfsemi stjórnmálasamtaka.
  33. Málefni sjóða og stofnana sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
  34. Landhelgisgæslu Íslands.

 

4. gr.

Félagsmálaráðuneyti.

Félagsmálaráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Félags- og fjölskyldumál, þar á meðal:
    1. Barnavernd.
    2. Þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
    3. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með sam­þætta sjón- og heyrnarskerðingu.
    4. Ráðgjafar- og greiningarstöð.
    5. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
    6. Málefni aldraðra.
    7. Málefni innflytjenda og flóttafólks.
    8. Þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. 27. og 33. gr. laga um útlend­inga og setningu reglugerða samkvæmt þeim ákvæðum, sbr. og 10. og 11. tölul. 1. mgr. 120. gr. laganna.
    9. Fjölmenningarsetur.
    10. Félagslega aðstoð.
    11. Félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.
    12. Greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
    13. Félagsþjónustu sveitarfélaga.
    14. Barna- og fjölskyldustofu.
    15. Ráðgjöf og úrræði vegna fjármála heimilanna, þ.m.t. greiðsluaðlögun einstaklinga.
    16. Umboðsmann skuldara.
    17. Ættleiðingarstyrki.
    18. Orlof húsmæðra.
  3. Lífeyristryggingar almannatrygginga, þar á meðal:
    1. Lífeyristryggingar og eftirlaun aldraðra.
    2. Tryggingastofnun ríkisins.
    3. Fjárhagsaðstoð við lifandi líffæragjafa.
  4. Vinnumál, þar á meðal:
    1. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
    2. Starfsmannaleigur.
    3. Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
    4. Vinnueftirlit ríkisins.
    5. Vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
    6. Félagsdóm.
    7. Vinnumarkaðsaðgerðir.
    8. Sáttastörf í vinnudeilum.
    9. Ríkissáttasemjara.
    10. Skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til.
    11. Atvinnuleysistryggingar.
    12. Tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví.
    13. Greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónuveirufaldursins.
    14. Atvinnutengda starfsendurhæfingu.
    15. Atvinnuréttindi útlendinga.
    16. Ábyrgð á launum við gjaldþrot.
    17. Fæðingar- og foreldraorlof.
    18. Vinnumálastofnun.
    19. Félagsmálaskóla alþýðu.
  5. Úrskurðarnefnd velferðarmála.

 

5. gr.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Opinber fjármál að því marki sem þau eru ekki falin öðrum aðilum, þar á meðal:
    1. Stefnumörkun og áætlanagerð í opinberum fjármálum.
    2. Forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga.
    3. Skuldbindingar fram yfir fjárlagaárið, þ.m.t. rekstrar- og þjónustusamninga.
    4. Almennt eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
    5. Sjóðstýringu.
    6. Lánsfjármál og lántökur.
    7. Ríkisaðstoð, ríkisábyrgðir og styrki til einkafyrirtækja, þ.m.t. framkvæmd laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
    8. Tekjufallsstyrki.
    9. Viðspyrnustyrki.
    10. Fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
    11. Stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
    12. Reikningshald ríkisins.
    13. Fjársýslu ríkisins.
    14. ÍL-sjóð.
  3. Eignir ríkisins, þar á meðal:
    1. Fasteignir, verðbréf og hlutabréf og fyrirsvar þeirra, þ.m.t. hlutverk ráðherra sam­kvæmt ákvæði til bráðabirgða V í lögum um Seðlabanka Íslands, að því marki sem þær eignir eru ekki faldar öðrum.
    2. Húsnæðismál ríkisstofnana.
    3. Bifreiðamál ríkisstofnana.
    4. Opinberar framkvæmdir.
    5. Ríkisjarðir, land í eigu ríkisins og samninga vegna nýtingar vatns- og jarðhita­réttinda, náma og jarðefna á landi utan þjóðlendna.
    6. Nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
    7. Jarðasjóð ríkisins.
    8. Bankasýslu ríkisins.
    9. Ríkiseignir.
    10. Framkvæmdasýslu ríkisins.
  4. Tekjuöflun ríkisins, þar á meðal:
    1. Skattamál, svo sem álagningu, uppgjör og aðra skattframkvæmd, skattrannsóknir og úrskurði í skattamálum, þ.m.t. málefni Skattsins og ríkisskattstjóra, skattrannsóknar­stjóra og yfirskattanefnd.
    2. Tolla og vörugjöld, þ.m.t. tollgæslu og innheimtu opinberra gjalda og málefni Toll­gæslu Íslands.
    3. Aðrar tekjur ríkissjóðs, þ.m.t. arðgreiðslur, leigutekjur og ýmis gjöld.
  5. Starfsmannamál ríkisins, þar á meðal:
    1. Almenna stefnumótun í mannauðsmálum ríkisins og fræðslu.
    2. Launa- og kjaramál.
    3. Launavinnslu.
    4. Réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
  6. Lífeyrismál, þar á meðal:
    1. Lífeyrismál starfsmanna ríkisins, forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæsta­réttardómara.
    2. Skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
    3. Starfsemi lífeyrissjóða, að því marki sem þau verkefni eru ekki falin öðrum.
    4. Viðbótartryggingavernd og séreignarsparnað, þ.m.t. starfstengda eftirlaunasjóði.
    5. Skattfrjálsa úttekt séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð.
  7. Hagstjórn og fjármálastöðugleika, þar á meðal:
    1. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og gerð þjóðhagsspár.
    2. Samhæfingu fjármála- og hagstjórnarstefnu fyrir hið opinbera.
    3. Vexti og verðtryggingu.
    4. Gjaldeyrismál.
    5. Setningu reglna um reikningsskil og ársreikning Seðlabanka Íslands skv. 4. mgr. 37. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
    6. Fjárhagsleg samskipti við Seðlabanka Íslands í tengslum við eiginfjármarkmið bank­ans, ráðstöfun hagnaðar hans og samkomulag um nánari framkvæmd innköllunar skv. 40. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
    7. Fjármálastöðugleikaráð.
  8. Fjármálamarkað, lagaumgjörð og eftirlit, þar á meðal:
    1. Fjármálafyrirtæki.
    2. Verðbréfaviðskipti.
    3. Verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
    4. Verðbréfasjóði.
    5. Markaði fyrir fjármálagerninga.
    6. Upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.
    7. Lykilupplýsingar vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta.
    8. Fjárhagslegar viðmiðanir.
    9. Aðgerðir gegn markaðssvikum.
    10. Skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
    11. Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki.
    12. Opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
    13. Innstæðutryggingar.
    14. Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
    15. Afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.
    16. Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.
    17. Ökutækjatryggingar.
    18. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum.
    19. Dreifingu vátrygginga.
    20. Úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga.
    21. Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
    22. Úrskurðarnefnd náttúruhamfaratryggingar.
    23. Greiðslukerfi og greiðsluþjónustu.
    24. Milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur.
    25. Skortsölu og skuldatryggingar.
    26. Viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
    27. Vátryggingasamstæður.
    28. Lánshæfismatsfyrirtæki.
    29. Evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
  9. Almennar umbætur í ríkisrekstri, þar á meðal:
    1. Skipulag og stjórnarhætti í ríkisstarfsemi.
    2. Opinber innkaup og málefni Ríkiskaupa.
    3. Kærunefnd útboðsmála.
    4. Hagræðingu í ríkisrekstri og árangursstjórnun.
    5. Málefni upplýsingasamfélagsins.
    6. Endurnot opinberra upplýsinga.
    7. Stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
  10. Annað, þar á meðal:
    1. Kröfulýsingu í þjóðlendur.
    2. Verslun með áfengi og tóbak og málefni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
    3. Málefni og eigendaforsvar fjölþjóðlegra lánastofnana, annarra en þeirra sem fara með þróunaraðstoð, þ.m.t. gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum (NIB), Endur­reisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), þ.m.t. skipun í sjóðsráð skv. 2. málsl. 2. mgr. 31. gr. laga um Seðlabanka Íslands.

 

6. gr.

Heilbrigðisráðuneyti.

Heilbrigðisráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Sjúkratryggingar, þar á meðal:
    1. Sjúklingatryggingu.
    2. Slysatryggingar almannatrygginga.
    3. Sjúkratryggingastofnun.
  3. Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:
    1. Landspítala.
    2. Sjúkrahúsið á Akureyri.
    3. Heilsugæslu.
    4. Heilbrigðisstofnanir.
    5. Sérhæfða heilbrigðisþjónustu utan stofnana.
    6. Endurhæfingarstarfsemi og meðferðarstofnanir.
    7. Tæknifrjóvgun.
    8. Þungunarrof.
    9. Ófrjósemisaðgerðir.
    10. Sjúkraskrár og gagnasöfn á heilbrigðissviði.
    11. Réttindi sjúklinga.
    12. Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu.
    13. Heyrnar- og talmeinastöð.
    14. Hjúkrunarheimili.
    15. Dvalarheimili.
    16. Dagdvöl aldraðra.
    17. Framkvæmdasjóð aldraðra.
  4. Lyfjamál, þar á meðal:
    1. Lyf.
    2. Ávana- og fíkniefni.
    3. Lækningatæki.
    4. Bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum.
    5. Lyfjastofnun.
  5. Lýðheilsu og forvarnir, þar á meðal:
    1. Heilsueflingu.
    2. Áfengis- og vímuvarnir.
    3. Tóbaksvarnir.
    4. Sóttvarnir.
    5. Sóttvarnalækni.
    6. Rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
    7. Geislavarnir.
    8. Geislavarnir ríkisins.
  6. Græðara.
  7. Lífvísindi og lífsiðfræði, þar á meðal:
    1. Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
    2. Vísindasiðanefnd.
    3. Lífsýnasöfn.
    4. Líffæragjafir og líffæraígræðslu.
    5. Ákvörðun dauða, dánarvottorð og krufningar.
  8. Embætti landlæknis.

 

7. gr.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Fræðslumál, þar á meðal:
    1. Leikskóla.
    2. Grunnskóla.
    3. Framhaldsskóla.
    4. Lýðskóla.
    5. Tónlistarskóla.
    6. Framhaldsfræðslu og málefni Fræðslusjóðs.
    7. Listaskóla.
    8. Námskrárgerð.
    9. Námsgögn.
    10. Námsmat.
    11. Vinnustaðanámssjóð.
    12. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
    13. Úrskurðarnefnd vegna kostnaðar við skólagöngu fósturbarna.
    14. Menntamálastofnun.
  3. Námsaðstoð, þar á meðal:
    1. Námslán.
    2. Námsstyrki.
    3. Menntasjóð námsmanna.
    4. Málskotsnefnd Menntasjóðs námsmanna.
    5. Námsstyrkjanefnd.
  4. Vísindi og rannsóknir, þar á meðal:
    1. Háskóla.
    2. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema.
    3. Rannsóknastarfsemi, einkum á sviði grunnrannsókna.
    4. Vísindastarfsemi sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
    5. Opinberan stuðning við vísindarannsóknir.
    6. Vandaða starfshætti í vísindum.
    7. Nefnd um vandaða starfshætti í vísindum.
    8. Rannsóknarsjóð.
    9. Innviðasjóð.
    10. Samtök um evrópska rannsóknarinnviði.
    11. Umsýslu og undirbúning funda fyrir Vísinda- og tækniráð.
    12. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum.
    13. Rannsóknamiðstöð Íslands.
  5. Safnamál, þar á meðal:
    1. Bókasöfn, utan bókasafna prestakalla, þ.m.t. Landsbókasafn Íslands.
    2. Skjalasöfn, þ.m.t. málefni Þjóðskjalasafns Íslands.
    3. Listasöfn, þ.m.t. málefni Listasafns Íslands.
    4. Minjasöfn, þ.m.t. Þjóðminjasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands.
    5. Safnasjóð.
  6. Menningarminjar, þar á meðal:
    1. Varðveislu menningararfs.
    2. Skil menningarverðmæta til annarra landa.
    3. Verndarsvæði í byggð.
    4. Minjastofnun Íslands.
  7. Listir og menningu, þar á meðal:
    1. Bókmenntir.
    2. Myndlist.
    3. Listskreytingar opinberra bygginga.
    4. Sviðslist, þ.m.t. sviðslistaráð og sviðslistasjóð.
    5. Tónlist, þ.m.t. málefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og málefni Tónlistarsjóðs.
    6. Kvikmyndir, þ.m.t. málefni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasafns Íslands.
    7. Starfslaun listamanna.
    8. Stuðning við listir og kynningu íslenskrar listar innan lands og utan.
    9. Miðstöð íslenskra bókmennta og bókmenntasjóð.
    10. Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku.
    11. Listskreytingasjóð.
    12. Þjóðleikhúsið.
    13. Íslenska dansflokkinn.
  8. Hugverkaréttindi, þar á meðal:
    1. Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, þ.m.t. einkaleyfi, vörumerki, félagamerki, uppfinn­ingar starfsmanna og hönnun.
    2. Hugverkastofu.
    3. Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.
  9. Faggildingu.
  10. Íslensk fræði, þar á meðal:
    1. Íslenska tungu.
    2. Íslenskt táknmál.
    3. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
    4. Örnefni og bæjanöfn.
    5. Örnefnanefnd.
  11. Íþróttamál, þar á meðal:
    1. Málefni þjóðarleikvanga.
    2. Frjáls félagasamtök.
    3. Sjóði.
    4. Íslenskar getraunir.
    5. Launasjóð stórmeistara í skák og málefni Skákskóla Íslands.
    6. Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
  12. Æskulýðsmál, þar á meðal:
    1. Æskulýðsráð.
    2. Æskulýðssjóð.
    3. Frjáls félagasamtök.
  13. Samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  14. Umboðsmann barna.
  15. Lögvernduð starfsheiti, þar á meðal:
    1. Starfsréttindi bókasafns- og upplýsingafræðinga.
    2. Lögverndun starfsréttinda leik-, grunn- og framhaldsskólakennara.
    3. Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa.
    4. Viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.
  16. Félagsheimili.
  17. Grænlandssjóð.
  18. Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands.

 

8. gr.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Samgöngur í lofti, á láði og legi, þar á meðal:
    1. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
    2. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
    3. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
    4. Farþegaflutninga, farmflutninga og almenningssamgöngur.
    5. Samgönguöryggi.
    6. Samgönguvernd.
    7. Samgönguáætlun.
    8. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
    9. Samgöngutækjaskrár.
    10. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
    11. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
    12. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
    13. Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
    14. Köfun.
    15. Slysavarnaskóla sjómanna.
    16. Lögskráningu sjómanna.
    17. Skipagjald.
    18. Samgöngustofu.
    19. Vegagerðina.
  3. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:
    1. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
    2. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
    3. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
    4. Mörk sveitarfélaga.
    5. Innheimtustofnun sveitarfélaga.
  4. Skipulagsmál, þar á meðal:
    1. Skipulagslög.
    2. Skipulag haf- og strandsvæða.
    3. Skipulagsstofnun.
    4. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
  5. Húsnæðis- og mannvirkjamál, þar á meðal:
    1. Húsnæðislán.
    2. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
    3. Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
    4. Húsnæðissjóð.
    5. Húsaleigumál.
    6. Húsnæðisbætur.
    7. Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
    8. Almennar íbúðir.
    9. Húsnæðissjálfseignarstofnanir.
    10. Húsnæðismálasjóð.
    11. Fjöleignarhús.
    12. Frístundabyggð.
    13. Kærunefnd húsamála.
    14. Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
    15. Brunavarnir.
    16. Eftirlit með byggingarvörum.
    17. Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
    18. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
  6. Byggðamál, þar á meðal:
    1. Byggðaáætlun og sóknaráætlanir.
    2. Svæðisbundna flutningsjöfnun.
    3. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
    4. Byggðastofnun.
  7. Landupplýsingar og grunnkortagerð, þ.m.t. málefni Landmælinga Íslands.
  8. Skráningu lögheimilis og aðseturs, fasteignaskrá og fasteignamat, þar á meðal:
    1. Þjóðskrá Íslands.
    2. Yfirfasteignamatsnefnd.
  9. Fjarskipti, þar á meðal:
    1. Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
    2. Fjarskiptaþjónustu, gagnaflutninga og fjarskiptarekstur.
    3. Fjarskiptavernd.
    4. Öryggi rafrænna samskipta og netöryggi.
    5. Öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
    6. Íslensk landshöfuðlén
    7. Eftirlit með fjarskiptum.
    8. Rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti.
    9. Fjarskiptasjóð.
    10. Fjarskiptastofu og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.

 

9. gr.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Náttúruvernd og sjálfbæra þróun, þar á meðal:
    1. Verndun lífríkis og líffræðilegrar fjölbreytni, svo sem verndun vistkerfa, búsvæða, tegunda og erfðaefnis, þ.m.t. í hafi.
    2. Verndun jarðfræðilegrar fjölbreytni, þ.m.t. jarðmyndana og landslags.
    3. Verndun náttúruminja eða sérstakra vistkerfa á hafsbotni til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið fer með framkvæmd á.
    4. Vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja.
    5. Friðlýst svæði og önnur verndarsvæði.
    6. Svæða sem njóta verndar samkvæmt sérlögum vegna náttúru eða landslags.
    7. Þjóðgarðinn á Þingvöllum.
    8. Vatnajökulsþjóðgarð.
    9. Úrbætur og uppbyggingu á aðstöðu til móttöku ferðamanna í þjóðgörðum, friðlýstum svæðum og öðrum verndarsvæðum.
    10. Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
    11. Náttúruverndarsjóð.
    12. Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn.
    13. Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
  3. Eftirlit með timbri og timburvöru.
  4. Rannsóknir og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, hafsins og hafsbotnsins, þar á meðal:
    1. Umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun.
    2. Rannsóknir á jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni öðrum en olíu og ráðgjöf um nýtingu þeirra.
    3. Íslenskar orkurannsóknir.
  5. Söfnun upplýsinga um umhverfis- og auðlindamál og sjálfbærni á norðurslóðum, þ.m.t. málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.
  6. Stjórn vatnamála.
  7. Umhverfisgæði, þar á meðal:
    1. Hljóðvist.
    2. Hollustuhætti og mengunarvarnir.
    3. Varnir gegn mengun hafs og stranda.
    4. Fráveitur.
    5. Efnalög.
    6. Meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.
  8. Erfðabreyttar lífverur.
  9. Umhverfisábyrgð.
  10. Hringrásarhagkerfi, þar á meðal:
    1. Meðhöndlun úrgangs.
    2. Úrvinnslugjald, þ.m.t. málefni Úrvinnslusjóðs.
    3. Ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
  11. Loftslagsmál, þar á meðal:
    1. Losun gróðurhúsalofttegunda.
    2. Viðskipti með losunarheimildir.
    3. Loftslagsráð.
    4. Loftslagssjóð.
  12. Upplýsingarétt um umhverfismál.
  13. Veður og náttúruvá, þar á meðal:
    1. Veðurþjónustu.
    2. Vöktun á náttúruvá.
    3. Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
    4. Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðingum þess ef manntjón hlýst af.
    5. Veðurstofu Íslands.
  14. Veiðistjórnun og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur, þar á meðal:
    1. Stjórnun veiða villtra fugla og villtra spendýra, annarra en sjávarspendýra.
    2. Vernd og friðun villtra dýra og villtra fugla.
    3. Alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu.
  15. Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál.
  16. Umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  17. Verndar- og orkunýtingaráætlun.
  18. Orkumál og auðlindanýtingu, þar á meðal:
    1. Öryggi raforkukerfisins.
    2. Raforkumarkað.
    3. Jöfnun kostnaðar við húshitun og dreifingu raforku.
    4. Forystu um orkusparnað, nýtingu orku og orkuskipti.
    5. Visthönnun vöru sem notar orku og orkumerkingar.
    6. Hitaveitur, gjaldskrár og stofnstyrki.
    7. Leyfi til nýtingar á auðlindum í jörðu og á, í eða undir hafsbotni.
    8. Leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíuleit).
    9. Vatnalög.
    10. Orkustofnun.
    11. Orkusjóð.
    12. Úrskurðarnefnd raforkumála.
  19. Umhverfisstofnun.

 

10. gr.

Utanríkisráðuneyti.

Utanríkisráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
  2. Utanríkismál, þar á meðal:
    1. Skipti forseta Íslands og annarra þjóðhöfðingja.
    2. Sendiskrifstofur og ræðisskrifstofur Íslands erlendis.
    3. Sendiráð og ræðisskrifstofur erlendra ríkja á Íslandi.
    4. Skipti við erlend ríki, þ.m.t. norræna samvinnu.
    5. Réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis.
    6. Samninga við önnur ríki og gerð þeirra og framkvæmd tiltekinna samninga, sbr. meðal annars lög nr. 90/1994, 57/2000, 93/2008 og 58/2010.
    7. Aðild Íslands að alþjóðlegum samtökum, stofnunum, ráðstefnum og fundum er varða opinbera hagsmuni og eigi ber undir annað ráðuneyti samkvæmt ákvæðum þessa úrskurðar eða eðli máls. Friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana.
    8. Diplómatísk vegabréf, þjónustuvegabréf og áritun vegabréfa.
    9. Kynningu Íslands og íslenskra efna með öðrum þjóðum nema slík mál séu lögð til annars ráðuneytis.
    10. Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun.
    11. Varnarmál, aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), varnarsamning Íslands og Banda­ríkjanna, samskipti og samstarf við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóða­stofnanir á sviði öryggis- og varnarmála, varnarsvæði, öryggissvæðið á Keflavíkur­flugvelli og önnur öryggissvæði, þ.m.t. skipulags- og mannvirkjamál, rekstur mann­virkja og eigna Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, þ.m.t. íslenska ratsjár- og loftvarna­kerfið (IADS).
    12. Útflutningsverslun.
    13. Undirbúning og framkvæmd viðskiptasamninga.
    14. Skipti Íslands við alþjóðleg viðskiptasamtök.
    15. Vörusýningar erlendis.
    16. Þróunarsamvinnu, friðargæslu og neyðarhjálp.
    17. Hafréttarmál.
    18. Flutning hergagna og annars varnings með loftförum skv. 1. og 5. mgr. 78. gr. laga um loftferðir.
    19. Framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, þ.m.t. frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og út­breiðslu gereyðingarvopna.

 

11. gr.

Ágreiningur.

Málefni sem eigi er getið í 1.–10. gr. skulu lögð til ráðuneytis þar sem þau eðli sínu samkvæmt eiga heima.

Nú leikur vafi á um, eða ágreiningur rís um, hvaða ráðuneyti skuli með mál fara og sker forsætis­ráðherra þá úr.

 

12. gr.

Gildistaka.

Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 119 frá 7. desember 2018 um skiptingu stjórnar­málefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, með síðari breytingum.

 

Gjört á Bessastöðum, 28. nóvember 2021.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2021