Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 702/2019

Nr. 702/2019 10. júlí 2019

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.

Strútur á Mælifellssandi, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti þann 11. apríl 2019, tillögu að deiliskipulagi fyrir Strút á Mælifellssandi. Tillagan tekur til stækkunar á núverandi skála, byggingu nýs skálavarðarhúss og stækk­unar á núverandi geymslu.
Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hellu, 10. júlí 2019.

F.h. Rangárþings ytra,

Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 24. júlí 2019