Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1063/2019

Nr. 1063/2019 22. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1165/2015 um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) 2017/1084 frá 14. júní 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar aðstoð vegna grunnvirkja hafna og flugvalla, tilkynningarmörk fyrir aðstoð vegna menningar og varðveislu menningararfleifðar og aðstoð vegna íþrótta­grunnvirkja og fjölnota tómstundagrunnvirkja og svæðisbundin rekstraraðstoðarkerfi á ystu svæðum og breyt­ingu á reglugerð (ESB) nr. 702/2014 að því er varðar útreikning á aðstoðarhæfum kostn­aði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 frá 22. september 2017.
  2. Minniháttaraðstoð vegna þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu – fram­lenging. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1923 frá 7. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 360/2012 að því er varðar gildistíma hennar, sbr. ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 266/2019 frá 25. október 2019.

2. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2017/1084, sbr. d-lið 1. gr., er birt í EES-við­bæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 668. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 185/2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 52/2019, 27. júní 2019, bls. 67.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1923, sbr. e-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 90/2019, 7. nóvember 2019, bls. 348. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefnd­ar­innar nr. 266/2019 verður birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. nóvember 2019.

 F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Haraldur Steinþórsson.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2019